Símtal.
Posted in Blog on október 31st, 2006 by ElsaÓtrúlegt hvað eitt símtal að heiman getur gefið manni mikið.
Þessi fegurðardrottning hringdi í mig áðan og sagði mér af hverju ég er að missa í Reykjavík og New York ![]()
Takk fyrir spjallið skvís – you made my day!
Ég hætti mér annars út í rigninguna áðan. Hjólaði niður í bæ að kaupa í matinn og fara á pósthúsið en sá svo ekki annan kost í stöðunni en að drífa mig bara heim aftur þar sem það var farið að sullast vatn upp úr skónum mínum!
Þvílíkt og annað eins úrhelli hef ég ekki séð lengi og ég þurfti aukakorter í sturtunni til að ná skjálftanum úr mér.
Þetta var mjög hressandi en ég held ég þurfi að kaupa bretti á hjólið mitt svo ég sé ekki með drullubrúna rönd upp eftir líkamanum að framan og aftan.
Ekki sérlega smart
Krákurnar í garðinum mínum (sem mörg ykkar hafa heyrt mig væla yfir áður
) eru að sækja í sig veðrið.
Ég bý með stelpu, sem heitir Anna.
Hún reykir og fer þess vegna út í garð á klukkutíma fresti að “fá sér ferskt loft”. Hún er hrædd við fugla og nú er svo komið að hún þorir ekki ein út á kvöldin! Ég er ekki lengur eini kjúklingur í íbúðinni og er glöð að það er fleirum en mér, sem finnst alveg nóg að horfa á Birds í bíó.
![]()
Talandi um að vera kjúklingur.
Sökum myrkfælni reyni ég að skipuleggja þvottatímann minn þannig að ég þurfi sem minnst að vera á ferli niðri í kjallara eftir myrkur. Yfirleitt tekst það mjög vel, en í dag brást mér bogalistin.
Vélarnar kláruðust fyrir korteri síðan, og þar sem fleiri ferðir ofan í kjallara (þar sem ég er viss um að leynast vondir kallar í öllum skúmaskotum) eru neðarlega á óskalistanum er núna þvottur um alla íbúð, á öllum stólbökum og ofnum.
Hvenær verður maður fullorðinn og hættir þessum barnaskap?!



