Bláa höndin.

Góðan daginn.
Það er nú meira hvað það er gaman að fylgjast með stjórnmálunum hérna í sósíalistalandinu Sverige, þar sem hægri flokkarnir breyttust í vinstri rétt fyrir kosningar (líkt og gerðist fyrir ekki svo löngu í öðru landi hér skammt frá).
Mér finnst svolítið spaugilegt að tala við sænska vini og kunningja, sem flestir eru hægrisinnaðir.
Ég hef oft hlustað á þetta fólk, t.d. Marcus fyrrverandi, tala um “mistök” vinstrimanna og -kvenna í fyrri stjórnum, t.d. um að hún fröken varaforsætisráðherra Mona Sahlin hafi ekki borgað stöðumælasektirnar og að herra fyrrverandi dómsmálaráðherra Thomas Bodström hafi borgað barnapíunni svart og reykt hass.
Þetta fannst fólkinu alveg skelfilegt og vildi að liðið segði af sér einn tveir og sautján. Mona tók að einhverju leyti ábyrgð á gjörðum sínum þótt mig minni nú að henni hafi verið troðið aftur inn í stjórn eftir ákveðinn tíma.
Hins vegar er komið annað hljóð í fólkið nú, þegar svipaðar syndir koma upp úr ruslapokum nýrra stjórnarmeðlima.
Greyið Reinfeldt ræður ekki neitt við neitt og bloggarar landsins rembast við að grafa upp skítinn og koma honum á síður æsifréttablaðanna.
Núna eru þetta (í augum þessara vina minna) allt í einu “smávægileg hliðarspor”, sem ekki ættu að valda svona miklum usla.
Á meðan gömlum kerlingum í Svíþjóð er hent í steininn og þær látnar borga himinháar upphæðir fyrir að henda rusli í vitlausan gám er varla hægt að líta fram hjá svona skattasvindli háttvirtra ráðherra, er það?
Af hverju passar þetta fólk sig ekki betur?
Þar sem Svíþjóð er aðeins stærra land en Ísland er örlítið erfiðara að komast á þing hérna og flestir pólitíkusanna hafa stefnt á frama í stjórnmálum síðan í gaggó. Datt þeim ekki í hug einhvers staðar á leiðinni að svona lagað kæmist upp og gæti komið þeim í bobba?
Eða treystu þeir því bara að Svíar héldu áfram að vera eins og Íslendingar og kipptu sér lítið upp við spillingu og svindl (eða yrðu brjálaðir í viku og gleymdu því svo)?
Yfir í annað og skemmtilegra.
Ég hitti Önnu Ýri og Karitas Guðrúnu í fyrradag og átti með þeim fínan eftirmiðdag, þótt daman væri að vísu þrælkvefuð og svolítið pirr.
Myndir má finna Hér.
Það gerist ekki mikið sætara en þetta :D
Hvernig væri svo að skilja eftir sig komment eða tvö gott fólk?!

Leave a Reply