Breytingar.

Ég elska PowerBókina mína, þrátt fyrir “smávægilega” galla ;)  Þetta er næstum svona skilyrðislaus ást, eins og milli móður og barns, enda litla barnið mitt þessi elska.
Ég komst hins vegar að því endanlega í gær að iWeb er leiðindaforrit, sem ég nenni ekki að púkka upp á.  (Gulli og Jóhann, þetta er bara fyrir ykkur: iWeb sucks.  Ánægðir?!)
Bara það að gera fólki kleift að setja inn komment var ferlegt vesen og tók steininn úr í gær þegar átti að fara að rukka mig fyrir það.  Nei takk.  Þá færum við okkur frekar eitthvað annað!

Held að þetta verði bara ágætislending og ég haldi mig hér einhvern tíma (enda þori ég ekki annað eftir að hafa verið með tvo tölvunarfræðinga í fullri vinnu í kvöld við að setja þetta upp og lagfæra eftir mínu þrjóska höfði!).

Var í prófi í dag, sem ég er búin að kvíða lengi.  Gekk framar vonum, held allavegana að ég sé nokkuð örugg með að hafa náð þessu, sem var ekkert sjálfgefið, enda skrítinn kúrs, sem ég er fegin að er búinn og kemur (vonandi) aldrei aftur (hvað eru margar kommur og aukasetningar í því!!?).
Á mánudag tekur við skemmtilegt námsefni og skemmtilegir skóladagar, þar sem blandað er saman bóklegum fyrirlestrum og verklegri kennslu, sem er jú það sem maður lærir langmest á í þessum skóla.  Það er ágætt að kunna teoríuna að baki þess að sprauta einhvern í rassinn, en maður kann það samt ekki fyrr en maður er búinn að prófa.  Nokkrum sinnum ;)

Átti frábært kvöld í kvöld í góðra vina hópi við spjall og át.  Takk kærlega fyrir mig!

5 Responses to “Breytingar.”

  1. Gulli Says:

    Takk fyrir mig sömuleiðis og já, ég er ánægður með iWeb commentið :)

  2. Josi Says:

    I told you iWeb sucks en nú er bara að bíða eftri því að Seli viðurkenni það

  3. Anna Says:

    Takk sömuleiðis skvís – það er alltaf gaman að fá ykkur Gulla í spjall og át!
    Nýja útlitið er rosalega cool!

    Puss och kram!

  4. Dagný Ásta Says:

    Elsa, WP virkar voða voða vel ;)
    til hamingju með breytinguna :)

  5. Siggi Pálma Says:

    Þetta er miklu flottara svona :)

    Vertu nú dugleg og komdu þessu bloggi af stað aftur :)

Leave a Reply