Fullorðins.

Ég er búin að eiga fullorðinsdag.
Suma daga er maður fullorðnari en aðra. Í dag er ég búin að skúra, skrúbba og bóna, þvo þvott, læra, elda almennilegan heimilismat og njóta þess að vera ein heima.
Ég er líka búin að vera með klassíkina mína í eyrunum í allan dag og mig klæjar í puttana að komast í flygilinn minn. Það er skrítið hvað klassísk tónlist hefur miklu meiri áhrif á mig en önnur. Ég tárast oft yfir væmnum popplögum og flottar ballöður finnast mér nauðsynlegar í hversdagnum, en það kveikir ekkert jafnmikið í mér og klassíkin.
Ég á mér nokkur uppáhaldstónverk, verk sem ég get hlustað á aftur og aftur og þekki hverja nótu í. Sum get ég m.a.s. spilað sjálf :D Í dag er ég búin að vera í rólegu deildinni.
Frá því að ég var lítil skotta að byrja að hafa gaman að klassíkinni, sem ég var “látin” spila í píanótímunum, hefur Satie verið í miklu uppáhaldi. Gymnopediurnar hans og Gnossiennurnar eru svo vel samdar að gæsahúðin hverfur ekki í marga tíma eftir hlustun.
Nocturnurnar hans Chopin hafa sömu áhrif og þá sérstaklega Es-dúr op. 9 nr. 2: andante og g-moll op. 15 nr. 3: lento (preferably í flutningi Daniel Barenboim).
Träumerei eftir Schuman er eitt af mínum uppáhalds og ég er búin að rembast við að læra að spila það almennilega sl. sumur. Þar sem ég verð heima allan desembermánuð skal mér takast að sigrast á þessu verki þá og það mun þá bætast við jólakonsertinn okkar Mimma á aðfangadag :D
Við Hilmir spiluðum einu sinni verk á tónleikum sem heitir Sicilienne og er eftir Fauré. Útsetningin fyrir Selló og píanó er ótrúlega falleg og ég mæli með að allir, sem hafa gaman að klassík, finni verkið og njóti.

Tónlist vekur upp svo margar minningar. Við þessa hlustun i dag var ég allt í einu komin til Sundsvall, þar sem eg bjó þegar eg var lítil. Ég var aftur i Saabnum að keyra út í Alnö, sem er eyja rétt fyrir utan bæinn. Þangað liggur löng brú (sem í minningunni er endalaus) og við keyrðum oft þangað í sunnudagsbíltúr. Í bílnum var m.a. segulbandsspóla með klassískri tónlist og uppáhaldið mitt varð snemma Rondo alla Turca eftir Mozart. Í dag nægir mér að heyra fyrstu nóturnar og þá er ég á leiðinni á ströndina :D

Á morgun er svo skóladagur og lokavinnsla á hópverkefninu (þessu sem er að gera okkur Imbu vitlausar ;) ) eftir hádegi. Ég er búin að hlaða batteríin svo svakalega vel þessa helgina að ég hlakka næstum því til að mæta.
En bara næstum því…

Leave a Reply