Haust í Sverige

Þá er haustið loksins að skella á.
Loksins segi ég, því ég elska þessa árstíð.
Haustinu fylgir að vísu skóli og í augnablikinu er ég ekki í miklu stuði fyrir hann… Kúrsinn leiðinlegur og þessi hópaverkefni endalaust að ganga af mér dauðri en þetta verður bráðum búið og nóvember verður meira en lítið frábær mánuður hér á bæ!
Haustið þýðir líka að geitungarnir hverfa bráðum og ég skal fagna því vel og innilega. Ég var nefnilega stungin af einum slíkum í fyrsta skipti á ævinni áðan og fannst það ekkert sérstaklega gott…
Hvernig líst ykkur svo á nýja bloggið?

Leave a Reply