Loksins!
Á morgun er próf í lyfjareikningi.
Ég er búin að vera dugleg að reikna og þetta er bara ekkert mál. Þ.e.a.s. ég skil 100% hvað ég er að gera og reikna gömlu prófin án vandræða. Loksins farin að skilja út á hvað þetta gengur eftir að hafa blandað óteljandi sýklalyfja- og verkjalyfjablöndur í sumar og þarf bara að ímynda mér að ég sé inni á lyfjaherbergi og þá liggur þetta alveg ljóst fyrir ![]()
Er svo búin að leggjast yfir reikningsaðferðir kennarans en skil þær ekki og ætla þess vegna bara að útskýra hvert einasta hænuskref í minni aðferð í orðum – þá getur hún bara ekki fellt mig. Ef hún gerir það er ég þá allavegana í rétta landinu til að standa uppi i hárinu á henni í þetta skiptið, ekki föst fyrir framan tölvuskjáinn á Íslandi!
Ég hlakka mikið til að vera búin með þetta próf og geta þá bara einbeitt mér að Stjórnuninni og skipulaginu og reynt að botna eitthvað í hvað er að gerast þar!
Ég er búin að vera eitthvað lítil í mér undanfarna daga og ég er með heimþrá. Þá hjálpar að skoða myndir af fólkinu sínu og þessa fann ég í símanum mínum um daginn:

Hún er tekin í Stokkhólmi í lok september þegar ég fékk að knúsa þennan stanslaust í einn sólarhring. Vona að mín eigin börn verði svona frábær!
Svo er annað trix, sem virkar alltaf þegar ég er eitthvað leið.
Jólalagatrixið. Í gær setti ég “Baby, it´s cold outside” (technically ekki jólalag…) og “My grown up christmas list” í iTunes og þá lyftist brúnin strax um nokkra millimetra. Ég er ekki crazy, prófiði bara!
Um helgina er ekkert planað nema að slappa af og læra. Svolítið eins og allar hinar helgarnar hérna
Ég kíkti aðeins út síðustu helgi og það endaði í þvílíkri vitleysu og drama, kostaði heila andvökunótt og vesen og samt var ég komin heim til mín stillt og prúð klukkan hálftólf!
Held ég haldi mig bara heima við í náttfötunum og með góða mynd í tækinu í þetta skiptið