T.G.I. Friday

Ég er alltaf jafnánægð þegar föstudagurinn kemur, enda langbesti dagur vikunnar.
Ég á reyndar frekar auðveldar vikur þennan kúrsinn, nær alltaf fjögurra daga helgar (sem eiga þó að fara í lærdóm…) og fyrirlestrarnir alltaf í miðri viku.
Við Ingibjörg hittumst og bölvuðum restinni af hópnum okkar aðeins í dag, kláruðum okkar part af verkefninu og hún gaf mér íslenskt nammi :D
Ég fékk nú reyndar flottan pakka með þristum og öðru skemmtiefni í vikunni svo ég er rosalega vel sett.
Takk fyrir það ;)
Ingibjörg gerði meira en bara gefa mér nammi því hún lánaði mér hleðslutæki svo ég gæti notað tölvuna mína um helgina.
Tölvan Tux er nefnilega biluð aftur. Aftur og nýbúin. Ég fór næstum því að grenja þegar hún gaf sig endanlega í gær. Hringdi svo í apple á Íslandi i morgun og lenti á bið.
Var númer 2 í röðinni í 13 mínútur og þegar loksins kom að mér slitnaði sambandið. Ekki i fyrsta skipti sem það gerist þegar ég hringi i skiptiborðið hjá þeim. Og hefði verið allt í lagi hefði inneignin mín ekki svo sem gott sem klárast við þetta.
Vinir mínir hjá Apple á Íslandi fengu því heldur pirraðan tölvupóst í morgun. M.a.s. svo pirraðan að þeir hafa sennilega smitast og þess vegna ekki getað svarað mér i dag.
Makkaveikin ógurlega herjar á íslenskt námsfólk í Skövdebæ og ég held ég þurfi að hugsa mig um tvisvar áður en ég spái í nýja tölvu. Fólkið hérna hefur verið að snúast smám saman yfir í Macintosh en einhvern veginn hafa allar nýju tölvurnar endað á verkstæði og þurft að dúsa þar svo vikum skiptir. Er nokkuð vit í því?
Fyrir utan tölvuvesen og grenjandi rigninguna hérna var þetta með betri dögum í langan tíma.
Ég ætla að vinna i að helgin verði jafnflott.
Góða helgi fallega fólk.

3 Responses to “T.G.I. Friday”

  1. Sigga Says:

    Hæ elsku Elsa mín!

    Til hamingju með 23 ára afmælið :O) ..fyndið hvað maður verður oft 22ja eða 23ja!
    Knús og kossar og hafðu það gott í kvöld!
    Þín Sigga

  2. Ragnheiður Says:

    Til hamingju með afmælið skvísan mín! Heyrumst bráðlega;)

  3. Elís Says:

    Grattis skvís!

    Njóttu dagsins – hann er Þinn

    Kveðja,
    Elís

Leave a Reply