Sushi og samræður yfir Sing-A-Long.

right

Við hittumst í kvöld nokkrar bekkjarsystur og smíðuðum sushi.
Ég hef bara einu sinni reynt að gera mitt eigið sushi og það heppnaðist ekki sérlega vel, svo ég tók því fegins hendi að fá kennslu í þessum fræðum í kvöld ;)

Þetta var bara þrælskemmtilegt og ég er ekki frá því að ég hafi dulbúna hæfileika í sushigerð. Mínar rúllur voru í það minnsta ekki ljótastar og stelpurnar samt í mikilli æfingu!
Eftir matargerð og át (ég er svo södd eftir þessi tvö kvöld að ég fór í stærstu náttbuxurnar mínar…) settumst við fyrir framan sjónvarpið og spjölluðum.
Það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki og sjá hvað maður á sameiginlegt eða minna sameiginlegt með viðkomandi.

Fyrir kvöldið í kvöld var ég með fordóma gagnvart stelpu einni í bekknum, sem mér hefur alltaf fundist fráhrindandi og ferlega furðuleg.
Hún er vissulega svolítið furðuleg við nánari kynni, en ekki nándar nærri eins leiðinleg og hrokafull og mér finnst hún virka í skólanum.  Þarf að venja mig á að gefa fólki séns :D

Núna liggur leiðin beina leið í draumalandið.
Er algjörlega búin á því, með vöðvabólgu og kvef, hausverk og eyrnaverk og alveg eins og drusla.
Þá er alltaf langskynsamlegast að skríða undir sæng, kveikja á hitateppinu og sofna við ljúfa tóna.
Fariði vel með ykkur lömbin mín.

Leave a Reply