Slappur sunnudagur.

Þetta er nú búinn að vera meiri letidagurinn.
Vaknaði aðeins skárri af verkjum og kvefi í morgun en er samt sem áður ennþá hálfræfilsleg.
Borðaði vítamín í morgunmat og lagði mig svo svona þrisvar í dag, á milli þess sem ég gerði ekki neitt :D

Ákvað þó að drífa mig í danstíma klukkan fimm, enda búin að leita að slíku í Skövdebæ síðan ég flutti hingað.  Bekkjarsystir mín hringdi í mig í gær og sagðist hafa fundið tíma, sem væru alltaf á sunnudögum og opnir öllum.
Gat ekki verið betra!
Þegar við mættum á svæðið var hópurinn á aldrinum 10-14 ára, en við ákváðum nú samt að bíða aðeins og gefa þessu séns, enda báðar dansþyrstar með eindæmum.
Kennarinn reyndist hins vegar algjörlega vanhæfur, tónlistin var ömurleg og krakkagreyin þekktu ekki hægri frá vinstri, svo úr varð einn hrærigrautur.
Hjóluðum því svekktar aftur heim á leið.

Þessi bær hættir aldrei að koma mér á óvart.  Í neikvæðum skilningi!
Bara nokkrir mánuðir eftir…

One Response to “Slappur sunnudagur.”

  1. herdis Says:

    ég vona að þú farir að hressast við sæta, og ég treysti á að ég fái að smakka sushi hjá þér sem fyrst;) knús frá ny.

    ps. þú ættir kannski bara að taka að þér að kenna dans! sýna þeim hvernig á að gera þetta;) ég mæli sko alveg með þér sem danskennara….

Leave a Reply