4:22
Klukkan er 22 mínútur gengin í fimm aðfararnótt 30. október og ég er ekki sofnuð.
Það verður ofsalega hressandi að sitja í skólanum frá 8 til 16 á morgun.
Úff.
Update: Klukkan er 14:46. Ég er ekki sofnuð enn, sit með svefngalsa og á koffíntrippi að læra um flogaveiki. Spurning hvort það er gáfulegra að leggja sig aðeins núna eða halda sér vakandi fram yfir kvöldmat og sofa svo bara í einum rykk til morguns?
október 30th, 2006 at 17:55
Hvar eru myndirnar sem þú lofaðir???
október 30th, 2006 at 18:31
Nei sæl. Brjáálað gaman að finna síðuna þína. Nú verður sko njósnað, hehe
Frábært að sjá hvað þú ert á góðri leið í lífinu, í hjúkkunámi og svona. Ég var nú einu sinni að spá í að fara í hjúkkuna en svo bara valdi ég lyfjafræði… aldrei að vita hvort maður skipti.
Kíkti aðeins á myndirnar þínar svona til að athuga hvort þú værir búin að breytast mikið (er nú ekki búin að sjá þig síðan sautjánhundruð og súrkál)… alltaf ertu jafn sæt!! haha, gaman að segja frá því að mig langaði alltaf að vera eins og þú þegar ég var lítil, mér fannst þú svo sæt!!!
úff, þetta er nú meiri ritgerðin… Hafðu það gott
Þín síða mun klárlega bætast á minn daglega bloggrúnt…