Archive for nóvember, 2006

Tilbúin!

Posted in Blog on nóvember 26th, 2006 by Elsa

Loksins er þetta allt að bresta á!
Ég er búin að standa á haus í dag að klára að pakka, þrífa og læra og nú er ég loksins búin að loka ferðatöskunni og skúra síðasta hornið :D
Ég er stolt af því að hafa pakkað svo vel að ég gat lokað ferðatöskunni án þess að hoppa á henni og ég er ekkert hrædd um að rennilásinn gefi sig. Var að spá í að troða meiru en ég ákvað að njóta þess einu sinni að ferðast með passlegan farangur eins og venjulegt fólk!
Svo gæti nú verið að maður bætti aðeins við í Gautaborg, það væri afspyrnuþægilegt að klára jólagjafakaupin bara á einu bretti!

Ég er sem sagt stungin af til Göreborg á morgun að knúsa mömmu og pabba.
Og versla jólagjafirnar.  Og fara á jólamarkaðinn í Liseberg.  Og drekka heitt kakó á kaffihúsi.  Og svo er pabbi búinn að lofa mér góðri steik.

Eftir viku er það svo bara Reykjavík City – hlakka heilan helling til að sjá ykkur öll!

Letiblogg.

Posted in Óflokkað on nóvember 24th, 2006 by Elsa

Ja hérna hér.
Enn einn föstudagurinn mættur á svæðið og bara mánuður til jóla.
3 dagar í settið og 9 í heimkomu!
Ótrúlegt hvað þessi blessaði tími líður hratt.

Ég var bænheyrð.
Kennararnir mínir ákváðu að breyta prófinu í þessum kúrsi í heimapróf, sem þýðir að ég skunda til Gautaborgar á mánudag. Fyrir utan stutta heimsókn hingað á miðvikudag er ég þá bara farin frá Skövde í bili og þarf ekki að mæta aftur fyrr en um miðjan janúar.
Þessu hefur verið ákaft fagnað undanfarna daga með tilheyrandi húrrahrópum.

Skólabækurnar hafa verið lagðar til hliðar
(þótt ég ætti auðvitað að vera að lesa um þvagfærasýkingar og lungnabólgu svo ég kunni kannski eitthvað örlítið í vinnunni í jólafríinu :/)
og ég er að þvo, þrífa og pakka í rólegheitunum.
Jólatónlistin hljómar hátt í herberginu mínu og ég syng hástöfum með og borða mandarínur.

Ég var einmitt að ræða jólatónlist við fallega skvísu um daginn og fór að hugsa um það hvaða jólalög fá pláss á topp 10 listanum mínum.
Og af því að jólin eru eftir mánuð og sumir kannski að fara að kaupa nýja jólatónlist hvað úr hverju ætla ég að skella listanum á bloggið!

Jólalagatoppurinn minn:

1. Gleði- og friðarjól – Pálmi Gunnars.
Þetta lag er búið að vera uppáhaldsjólalagið heima hjá mér frá því ég man eftir mér.
Ég á minningar um mömmu skælandi yfir því á Þorláksmessu og eftir því sem ég eldist þykir mér bara vænna og vænna um þetta lag.

2. Yfir fannhvíta jörð - Pálmi Gunnars.
(og svo var það að koma út í rosalega flottri útgáfu með honum Sigga Pálma á ”Jól með Mannakornum” – mæli með þeim báðum!)
Líka lag sem ég hef hlustað á í fleiri fleiri ár.  Jólalegra gerist það ekki og ég fæ fílinginn beint í æð!

3. Grown-up Christmas List - Michael Bublé.
Þar sem ég er óheyrilega væmin og fer alltaf að skæla yfir textum þar sem maður er minntur á hvað maður á að vera þakklátur fyrir sitt fær þetta lag sæti í topp 3.
Svo syngur Michael vinur minn eins og engill og bætir aukastjörnu við lagið.
Mæli með að fólk skoði jóladiskinn hans - Let it snow.

4. Sagan af Jesúsi - Baggalútur.
Til að vega aðeins upp á móti alvörunni og koma með létta jólaandann er tilvalið að hlusta á þetta snilldarlag.
Ég grenjaði úr hlátri þegar ég heyrði textann fyrst og geri það svo sem enn, enda algjör snilld.

5. Driving home for Christmas - Chris Rea.
Þetta lag greip mig í fyrsta skipti sem ég heyrði það og hefur ekki sleppt mér síðan.
Ég skal alveg keyra heim með honum Chris ef hann syngur fyrir mig.

6. Ave Maria - Sigvaldi Kaldalóns.
Þetta lag vekur ótrúlega sterkar minningar.
Það var sungið í jarðarförinni hennar ömmu Elsu rétt fyrir jólin og ég átti erfitt með að hlusta á það í mörg ár á eftir.  Núna koma bara gleðitár þegar ég hugsa um ömmu gömlu og nýt þess að hlusta á Fílharmoníuna og Diddú syngja.

7. Baby, it´s cold outside
- Dean Martin/Louis Armstrong & Ellu Fitzgerald.

Ég elska stemminguna í þessu lagi!  Kemur mér alltaf í gott skap í jólastressinu!

8. Silent night - Sinead O´Connor.

Gæsahúð.  Eiginlega ekkert meira um það að segja – geðveik útgáfa.

9. Ó helga nótt - Egill Ólafs og Fóstbræður.
Klikkar aldrei.  Falleg rödd og hátíðlegt lag.

10. Brandenburgarkonsertarnir - J.S. Bach.
Tæknilega ekki jólatónlist – en þessi flýtur alltaf undir borðhaldinu hjá okkur á aðfangadag og er orðinn órjúfanlegur hluti af jólahaldinu.

Takk fyrir allar kveðjurnar við síðustu færslu – þið eruð öll yndisleg.

Afmælisdagur.

Posted in Blog on nóvember 18th, 2006 by Elsa

Eftir því sem ég eldist geri ég mér betur og betur grein fyrir því hvað ég hef verið heppin í lífinu.
Ég hef stundum sagt það í hálfgerðu gríni að ég skammist mín fyrir það hvað ég hef haft það gott.
Af hverju er mikið á suma lagt þegar aðrir fá að fljóta í gegnum lífið á janfauðveldan hátt og ég hef gert hingað til?

Ég á ótrúlega gott bakland.
Það er það mikilvægasta af öllu.  Þegar eitthvað bjátar á er svo miklu auðveldara að takast á við það með fólkið sitt sér við hlið.

Pabbi minn á afmæli í dag.
Hann er ótrúlega gott eintak af foreldri.
Alltaf til staðar og kletturinn minn.
Takk elsku pabbi og elsku mútta fyrir að vera til.
Ég hefði ekki getað valið betra sett.
Litli bróðir er ekki sem verstur heldur – ég er fegin að hann valdi sér sama par og ég ;)
Til hamingju með daginn gamli minn.

Of mikið hrós?

Posted in Blog on nóvember 17th, 2006 by Elsa

Úff.
Ég var að horfa á sænska ædolið.
Ég hef oftast gaman að raunveruleikasjónvarpsefni, sérstaklega Idol og So you think you can dance.
Ég held hins vegar að það sé kominn tími á að gefa þessu nokkurra ára pásu, a.m.k. hérna í Svíþjóð.
Í þættinum í kvöld voru fjórir keppendur eftir og sungu allir tvö lög.
“Ástin” var þema og allir væmnir og krúttlegir.

Tveir keppendanna hafa verið rammfalskir í gegnum alla keppnina.
Agalega sæt stelpa annars vegar, sem heitir Felicia.  Hún er ekta sænsk skvísa, ljóshærð og með colgatebros, alltaf góð og glöð.  Hún græðir örugglega fullt af atkvæðum með því að vera svona sæt.  Og sænsk.
Hinn falski söngfuglinn er unglingsstrákur, sem heitir Johan.  Hann er ekkert sérstaklega mikið fyrir augað en ofsalega … sænskur að innan, góður strákur.  Ég veit ekki alveg hvaðan atkvæðin hans koma, en hann fær þau mörg, því hann tollir inni viku eftir viku, þrátt fyrir að 70% af öllum tónum séu pínlega ljótir.

Þá komum við að efni þessa bloggs.
Hver er eiginlega ástæðan fyrir öllu þessu fólki, í öllum þessum hæfileikakeppnum, sem hefur tröllatrú á eigin (misskilda) ágæti, hvort sem um ræðir dans eða söng eða eitthvað allt annað?
Er þetta uppeldið?
Er alið á því alla daga heima fyrir að viðkomandi sé langbestur og
langflottastur í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur?
Jafnvel þótt hann sé falskur og taktlaus?
Ég held að það vanti oft á tíðum raunsæi í foreldra.  Hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það.
Gerir það nokkrum gott að vera hampað á fölskum forsendum?

Væri ekki betra að ala á heilbrigðri skynsemi og beina börnunum á aðrar brautir?  Allir hafa einhverja hæfileika og það hlýtur að vera betri leið að rækta þá en reyna að halda fast í drauminn um aðra, án þess að hafa nokkurn tíma árangur sem erfiði.
Kannski er ég bara að bulla.
Ég held þó að rétt blanda af uppbyggjandi gagnrýni og réttmætu hrósi hljóti að vera besta veganestið út í lífið.

Annað er varla fréttnæmt héðan út Skövdebæ.
Búin að vera ferlega lasin og slöpp svo til alla vikuna, fyrir utan þær stundir sem herra Ibufen og fröken Panodil hafa gert mér lífið bærilegra.
Er þó að skríða saman og bara sæmilega hress í dag.
Líkamlega hress en andlega svolítið úldin.
Fjárfesti þess vegna í bók í dag og ætla að sökkva mér í sjóðheitar
ástarsenur og happy endings.

Jólasnjór.

Posted in Blog on nóvember 13th, 2006 by Elsa

Það er dásamlegur jólasnjór úti.  Ég sat heillengi í gluggakistunni áðan og horfði út. Drakk kanilte og borðaði piparkökur.  Innvafin í flís og ull og jafnvel einhvern lopa líka!
Svo horfði ég á Love actually og komst í ennþá meira jólaskap.
Fer ekki alveg að verða í lagi að bjóða jólaskapið velkomið??
Ég er búin að fjárfesta í nýrri jólaplötu, sem ég mæli hiklaust með.
Diskurinn heitir Wintersong með Sarah McLachlan.
Frábær söngkona og flott lagaval.
Fæ gæsahúð frá hvirfli til ilja þegar ég hlusta á hana syngja River, gamla Joni Mitchell lagið.
Á morgun ætla ég að skreppa til læknis og fá lyf við eyrnabólgunni, sem er búin að plaga mig undanfarnar vikur. Ég er að verða ískyggilega heyrnarlaus vinstra megin, og þá er sennilega kominn tími á stórskotaárás á þessar bakteríur.
Vonandi að hálsbólgukvikindin séu næm fyrir sama lyfi og ég losni við
alla flóruna á einu bretti!

Ég er að verða lélegri og lélegri í íslenskunni.  Vona að ég hafi giskað rétt og að kvikindi séu með einföldu.  Úff.

Lazarus.

Posted in Blog on nóvember 13th, 2006 by Elsa

Það hlaut að koma að því að ég næði mér í haustpest.
Hef bankað í tré og þakkað mínum sæla fyrir það undanfarnar vikur að hafa sloppið við kvefdrulluna og hálsbólguógeðið, sem hefur herjað á sambýlinga og aðra vini og kunningja.
Fann það þegar ég var að leggjast í bólið í gærkvöldi að hálsinn var aumur og allt að stíflast.
Vaknaði svo stútfull af viðbjóði og með tvær golfkúlur í stað hálskirtla og er búin að drekka nokkra bolla af mýkjandi tesulli í morgun.
Oj bara.  Vonandi verður þetta stutt heimsókn hjá fröken Pest.

Helgin.

Posted in Blog on nóvember 12th, 2006 by Elsa

Góðan eftirmiðdag gott fólk.

Það er til marks um góða helgi að ég er úrvinda en í fáránlega góðu skapi.
Föstudagskvöldinu var þó eytt í rólegheitum fyrir framan sjónvarpið og uppi í rúmi með góða bók.
Vaknaði snemma og full af orku í gærmorgun og ákvað að nýta hana í lestur.  Komst í gegnum eins og tvo kafla í sjúkdómabókinni og er bara sátt með það.  Námsefnið er einstaklega áhugavert í þessum kúrsi og það auðveldar mér lífið heilmikið!

Um miðjan dag birtust svo vinir hennar Lindu, sem komu hingað frá Gävle gagngert til þess að skoða skemmtanalífið.  Þetta reyndist hið skemmtilegasta fólk og var mikið hlegið og mikið gaman.  Gulli og Jói bættustu svo í hópinn er líða tók á kvöldið og þá varð ennþá meira kátt á hjalla.  Linda fór á kostum og við hin hlógum að og með henni :D
Skelltum okkur á hinn “rómaða” skemmtistað Kåren og þar varð dansgólfið fyrir barðinu á okkur.
Langt síðan ég hef farið út að dansa og langt síðan ég hef skemmt mér svona vel.
Nú er bara að vona að krökkunum hafi fundist það gaman að þau komi aftur fljótlega!
Jafnvel bara næstu helgi??!

Ég vaknaði aftur hress og kát í morgun, þrátt fyrir lítinn svefn.
Anna og Jóhann voru ofurmyndarleg og buðu í kaffi og kræsingar og þar hittist íslenska landsliðið. Sumir voru þreyttir, aðrir voru þunnir og allir voru skemmtilegir að vanda.
Takk fyrir mig – þetta var svo gott og gaman að ég er ennþá afvelta :/

Á morgun þarf ég svo að setja í fimmta gír í lærdómnum og rumpa af hellings helling.
Á morgun eru bara tvær vikur í mömmu og pabba og í dag eru akkurat þrjár vikur í lendingu á Keflavík airport!
Ég er ánægð með þá þróun ;)

Sænska 101.

Posted in Blog on nóvember 8th, 2006 by Elsa

Halló halló.
Afsakið, ég stend mig ekki í stykkinu.  Held þó að bloggandinn sé að koma yfir mig aftur ;)
Ég er búin að vera ofsalega dugleg að læra undanfarna daga.
Þarf að vera búin að gera allt í kringum 27. nóvember, því þá mæta mútta og pabbi til Svíþjóðar.
Ég og mamma vorum búnar að skipuleggja frábæra viku í Gautaborg (á meðan gamli elur heilasellurnar á ráðstefnu), jólagjafakaup og kaffihúsaráp, með einstaka listasafnapásum.
Skólinn minn samþykkti þau plön hins vegar ekki og ég verð eins og jójó á milli Skövde og Göteborg, haldandi fyrirlestra, takandi próf og pakkandi í töskur, þar sem heimför er áætluð 3. desember, eftir aðeins 24 daga.
Þetta þýðir bara að við verðum að versla á tvöföldum hraða, skipta með okkur hæðum á söfnunum og drekka expresso í stað lattes ;)
Það er svo margt skemmtilegt að gerast í lífinu mínu þetta haustið.
Skólinn er að skríða í skemmtilegan fasa, ég er að kynnast frábæru fólki og ég er loksins farin að sjá fyrir endann á endalausu náminu.
Finnst ótrúlegt að ég verði loksins komin með gráðu og orðin eitthvað í vor, eftir flandur í hinum og þessum greinum og óttalegt stefnuleysi.
Ég er líka greinilega að verða fullorðin, því ég sé í hillingum greiðslumat og bankastúss, íbúðarkaup og innréttingapælingar.  Ég er meira að segja búin að finna draumaískápinn!
Ég ætla að láta undan þrýstingi og tala tungum, sænska pakkið vill geta lesið þetta líka!

Hejsan hejsan!
Ursäkta, jag har inte hållit mitt löfte och bloggat varje dag, men jag tror jag känner blogandan återvända!
Jag har varit jätteduktig att plugga de sista dagarna.
Måste ha allting gjort omkring den 27 november, för att då kommer mamma och pappa till Sverige.  Jag och mamma hade planerat en supervecka  (medan stackars pappa sitter och blir ännnu smartare på
läkarstämman) med julklappsshopping, cafébesök och någon enstaka paus på diverse museer och gallerier.
Min skola har dock andra planer, och jag kommer att vara som en jojo mellan Skövde och Göteborg, hållande “föredrag”, skrivande tenta och packande inför hemresan, som är planerad den 3 desember, efter endast 24 dagar!
Detta betyder att vi måste shoppa i raketfart, dela med oss våningarna på konstutställningarna och dricka expresso istället för kaffe latte ;)
Det är så mycket roliga grejer som händer i mitt liv denna hösten.
Skolen börjar arta sig, jag håller på och lär känna en mängd härliga människor och jag känner slutet på eviga studier närma sig! Det känns otroligt att jag äntligen kommer att ha en examen och ha hunnit bli någonting i vår, efter otroligt mycket om och men och sökande i olika riktningar.
Jag håller tydligen också på att bli vuxen, eftersom jag längtar hur mycket som helst till låneförhandlingar på banken och köp av lägenhet. Jag har till och med hittat drömkylskåpet!
Tack för en lärorik och trevlig dag, Annika och Linda, det är aldrig fel att ha lite kul medan man suger in mer kunskap i hjärnan ;)

Föstudagsflipp.

Posted in Blog on nóvember 3rd, 2006 by Elsa

Halló.
Ég lofaði sjálfri mér að blogga á hverjum degi og hef staðið við það í marga marga daga.
Dettur hins vegar ekkert í hug að blogga um í dag og nenni ekki að skálda eitthvað skemmtilegt, eins og litli bróðir stakk upp á.
Fann þetta á mæspeisinu henna Margrétar Maack og stal því.

Hversu vel þekki iTunesið mitt mig?
Setti safnið á shuffle og svona kom þetta út:

What’s my mood like right now?
Home – Michael Bublé
Úff já. Heim takk.

How’s tomorrow going to be for me?
The Promise – Tracy Chapman
Hmm. Erfitt að túlka þennan! En flott lag engu að síður. Góður dagur.

What kind of person am I?
Gold Digger – Kanye West
Nei hættu nú alveg!

Am I loved?
All I want for Christmas is you – Olivia Olson
Já, það er eins gott að einhvern langi í mig í jólagjöf.

How can I achieve my highest potential?
Littlest things – Lily Allen
Gleðjast yfir litlu hlutunum? Til að komast á toppinn? Allt í lagi þá.

What should I do with my life?
Dance for me – Mary J Blige
Haha. Ég hætti þá bara í hjúkrun og læt æskudrauminn rætast :D

Is everything really going to be alright in the end?
But not for me – Lisa Ekdahl
Hvurslags neikvæðni er þetta. Auðvitað verður allt í lagi. Er það ekki annars?

What is my best quality?
Don´t smoke in bed – Nina Simone
Minn helsti kostur? Vissulega reyki ég ekki í rúminu, en ég hlýt nú að gera eitthvað merkilegra en það??

How does my sex life look?
Að vera í sambandi – Stuðmenn
Fliss.

What’s the meaning of life?
Supposed to be – Jack Johnson
Þessu er ég alveg sammála.

What do people think of me?
Until the real thing comes along – Rod Stewart
Úff.

Would I make a good catch?
The One – Rhian Benson
Hjúkket.

How crazy am I?
Ég heyri raddir – Todmobile
Hahahaha. Hahahaha.

Will I have a good life in general?
Rescue Me – Aretha Franklin
Á ég að biðja geimverurnar að bjarga mér bara strax? Áður en allt fer til fjandans?

Can anyone ever really love me?
Bad man – Missy Elliott
Nei nei, enga bad boys. Ég vil bara góðu strákana.

Can me and a mate ever be more than friends?
Hide and seek – Imogen heap
Feluleikur? Hver er týndur?

What’s going to happen to me this week?
Pain Killer – Turin Brakes
Passar alveg. Vöðvabólga dauðans hér á bæ.

Where will I be a year from now?
I still haven´t found what I´m looking for – U2
For the love of god. Ég er búin að eyða 5 árum í að finna mig. Er það ekki nóg?

What is my biggest wish?
Tequila – Bogomil Font og Miljónamæringarnir
Þetta iTunes þekkir mig greinilega ekki rass.

What is the love of my life doing at this very moment?
Kiss Kiss – Holly Valance
I sure hope not!

How will I die?
Hunter – Dido
Pabbi, ég er hætt að fara með þér á gæs.

What will happen after I die?
Can´t cry hard enough – The Williams brothers
Allir sorgmæddir. Sniff.

How do my friends feel about me?
Medusa – Harem
Æi nei!

Þetta var nú sérdeilis hressandi.

Óþolandi myndakraðak.

Posted in Blog on nóvember 2nd, 2006 by Elsa

Ég er búin að sitja sveitt í allt kvöld að reyna að koma einhverri reglu á myndirnar mínar.
Komst að því um daginn að við tiltekt í tölvunni í sumar hefur mér tekist að henda ágætismagni af myndum – en það þýðir ekkert að gráta það, ég verð bara að vera duglegri að taka myndir í framtíðinni!
Mikið verð ég hamingjusöm þegar þetta er búið!

Í dag fór ég í klippingu.  Ég er orðin stutthærðari en ég var eftir klippinguna í september og aftur orðin dökkhærð.
Ef þið heyrið mig tala um að reyna að verða ljóshærð aftur, viljiði vinsamlegast tala mig ofan af því.  Þig megið gjarnan nota þau rök að ég hafi reynt það tvisvar áður og komist að því eftir nokkurra mánaða óánægju að ég sé bara best með dökkan lubba :D

Nú er hálka úti og smá snjóföl yfir ísnum.
Einn sambýlinganna er því búinn að leggja bílnum, þar sem það er stórhættulegt að keyra í svona “ófærð”.
Við hinar, sem komum frá Íslandi, Norður-Svíþjóð og Norður-Finnlandi, hlæjum að greyið Johönnu, sem er fædd og uppalin á Skáni og verður alltaf jafnhissa þegar það fer að snjóa á haustin.
Það er reyndar ekki bara hún sem er hissa, því á hverju ári lamast samgöngur í landinu þegar fyrsti snjórinn fellur.
Ég skil að það komi fólki í LA eða Saudi Arabíu í opna skjöldu ef það snjóar í nóvember, en er ekki svolítið skrítið að í heilu landi í Norður Evrópu, þar sem snjóar alltaf um þetta leyti, skuli verða algjört öngþveiti í nokkra daga á hverjum vetri??
Ýmislegt skrítið í henni Svíþjóð!