Árstíðaskipti.
Árstíðaskiptin hérna í Sverige eru ótrúleg.
Það gerist allt svo hratt og mörkin eru ótrúlega skýr.
Í gær var haust.
Alveg dæmigert íslenskt haustveður:
10 gráðu hiti, grenjandi rigning og rok.
Í dag er hins vegar vetur.
Snjór og hálka, tveggja gráðu frost og nagandi vindur.
Svona er þetta líka á vorin.
Einn daginn er bara allt í einu allt í blóma, býflugurnar mættar á svæðið og fólkið komið í sumarfötin.
Ekki alveg sama upplifun og heima á Fróni, þar sem árstíðirnar
renna allar saman í einn hrærigraut!
nóvember 2nd, 2006 at 10:21
Hæ elsku Elsa mín! Mikið er alltaf gaman að lesa bloggið þitt. Skil alveg myrkfælnina þína, bíddu bara, hún á eftir að lagast hjá þér og hverfa alveg. Gangi þér rokna vel í skólanum og mundu að láta sjá þig hér í desember þegar þú kemur heim, lofaðu mér því! Bið að heilsa í bili, þín Anna.
nóvember 2nd, 2006 at 19:21
Sæl Elsa mín. Ég er ekki mikill snjóaðdáandi, nema reyndar yfir jólin, þá vil ég hafa snjó og mikið af honum
Akkurat í þessum skrifuðu orðum er brjálað rok, 10 stiga hiti og rigningarsuddi… svona ekta íslenskt.
Annars er ég bara að kvitta hjá þér
… rosalega ert þú dugleg að blogga annars. Ég ætti að taka þig til fyrirmyndar :S
Hafðu það gott Elsa mín og skilaðu kveðju til Mimma frá mér… sniðug hugmynd að reyna að hittast einhverntíman við tækifæri