Óþolandi myndakraðak.
Ég er búin að sitja sveitt í allt kvöld að reyna að koma einhverri reglu á myndirnar mínar.
Komst að því um daginn að við tiltekt í tölvunni í sumar hefur mér tekist að henda ágætismagni af myndum – en það þýðir ekkert að gráta það, ég verð bara að vera duglegri að taka myndir í framtíðinni!
Mikið verð ég hamingjusöm þegar þetta er búið!
Í dag fór ég í klippingu. Ég er orðin stutthærðari en ég var eftir klippinguna í september og aftur orðin dökkhærð.
Ef þið heyrið mig tala um að reyna að verða ljóshærð aftur, viljiði vinsamlegast tala mig ofan af því. Þig megið gjarnan nota þau rök að ég hafi reynt það tvisvar áður og komist að því eftir nokkurra mánaða óánægju að ég sé bara best með dökkan lubba
Nú er hálka úti og smá snjóföl yfir ísnum.
Einn sambýlinganna er því búinn að leggja bílnum, þar sem það er stórhættulegt að keyra í svona “ófærð”.
Við hinar, sem komum frá Íslandi, Norður-Svíþjóð og Norður-Finnlandi, hlæjum að greyið Johönnu, sem er fædd og uppalin á Skáni og verður alltaf jafnhissa þegar það fer að snjóa á haustin.
Það er reyndar ekki bara hún sem er hissa, því á hverju ári lamast samgöngur í landinu þegar fyrsti snjórinn fellur.
Ég skil að það komi fólki í LA eða Saudi Arabíu í opna skjöldu ef það snjóar í nóvember, en er ekki svolítið skrítið að í heilu landi í Norður Evrópu, þar sem snjóar alltaf um þetta leyti, skuli verða algjört öngþveiti í nokkra daga á hverjum vetri??
Ýmislegt skrítið í henni Svíþjóð!
nóvember 3rd, 2006 at 10:45
Ég var einmitt búinn að vera að velta þessu fyrir mér – það er nú ekki eins og snjór hafi ekki sést í Svíþjóð áður en allt hreinlega lamast. Minnir mann á Reykjavík á “góðum” degi
nóvember 3rd, 2006 at 18:17
Sama saga i London og New York. lamast allt ef thad kemur sma snor:) anaegd med hvad thu ert dugleg ad blogga snulla.