Helgin.

Góðan eftirmiðdag gott fólk.

Það er til marks um góða helgi að ég er úrvinda en í fáránlega góðu skapi.
Föstudagskvöldinu var þó eytt í rólegheitum fyrir framan sjónvarpið og uppi í rúmi með góða bók.
Vaknaði snemma og full af orku í gærmorgun og ákvað að nýta hana í lestur.  Komst í gegnum eins og tvo kafla í sjúkdómabókinni og er bara sátt með það.  Námsefnið er einstaklega áhugavert í þessum kúrsi og það auðveldar mér lífið heilmikið!

Um miðjan dag birtust svo vinir hennar Lindu, sem komu hingað frá Gävle gagngert til þess að skoða skemmtanalífið.  Þetta reyndist hið skemmtilegasta fólk og var mikið hlegið og mikið gaman.  Gulli og Jói bættustu svo í hópinn er líða tók á kvöldið og þá varð ennþá meira kátt á hjalla.  Linda fór á kostum og við hin hlógum að og með henni :D
Skelltum okkur á hinn “rómaða” skemmtistað Kåren og þar varð dansgólfið fyrir barðinu á okkur.
Langt síðan ég hef farið út að dansa og langt síðan ég hef skemmt mér svona vel.
Nú er bara að vona að krökkunum hafi fundist það gaman að þau komi aftur fljótlega!
Jafnvel bara næstu helgi??!

Ég vaknaði aftur hress og kát í morgun, þrátt fyrir lítinn svefn.
Anna og Jóhann voru ofurmyndarleg og buðu í kaffi og kræsingar og þar hittist íslenska landsliðið. Sumir voru þreyttir, aðrir voru þunnir og allir voru skemmtilegir að vanda.
Takk fyrir mig – þetta var svo gott og gaman að ég er ennþá afvelta :/

Á morgun þarf ég svo að setja í fimmta gír í lærdómnum og rumpa af hellings helling.
Á morgun eru bara tvær vikur í mömmu og pabba og í dag eru akkurat þrjár vikur í lendingu á Keflavík airport!
Ég er ánægð með þá þróun ;)

6 Responses to “Helgin.”

  1. Þórey Sif Brink Says:

    Jahá! það er svona gott skemmtanalíf í skövdeborg?? varstu ekki örugglega þar…
    hlakka til að koma og djamma með þér í viku…þú sleppur ekkert við það!

  2. Dagný Ásta Says:

    Dugnaður í liðinu ;)

    Verðuru alkomin heim eftir 3v ?

  3. Ragnheiður Says:

    Sæl Elsa mín..
    Gott að þú skemmtir þér vel um helgina, ég skemmti mér líka alveg OFBOÐSLEGA vel í gær á salsakvöldi, og auðvitað hugsaði ég mikið til þín, fannstu það ekki örugglega?;) Þú ert klárlega að fara að koma með mér einhverntíman… ohh salsa er BEST Í HEIMINUM… Næsta salsakvöld verður 9. des. Svolítið slæm tímasetning fyrir mig þar sem ég er á fullu í prófunum, en ef til vill langar mig að komast aðeins úr húsi í svona 2 klukkutíma að dansa ;)

    Hafðu það annars gott Elsa mín.. það er svo gaman að lesa bloggið þitt, haltu áfram að vera dugleg að blogga :)

  4. Anna Says:

    Halló Elsa – uppáhalds-píanónemandi með meiru :) Þú ert sko örugglega á réttum stað í hjúkruninni. Skilaðu kveðju til pabba og mömmu. VERÐ að fara að hitta þau og ykkur öll!!!!

  5. esla Says:

    Þórey: Well… Þeir segja “home is where the heart is” og allt það, er ekki hægt að yfirfæra það á skemmtistaðina og segja að það er alltaf gaman ef maður er með rétta fólkinu?? Vilket betyder að það verður gleði gleði þegar þú kemur í Skövdebæ ;)

    Dagný: Njae, ekki alkomin en næstum því! Fer úr aftur í janúar og verð í nokkrar vikur. Svo er þetta búið ;)

    Ragnheiður: Ég held að það hafi verið salsastraumar frá þér í fótunum á mér á laugardagskvöld ;) Hlakka til að tjútta með þér heima!

    Anna: Gaman að sjá þig hér! Já, ég held þú verðir að skella þér í heimsókn á Flyðrugrandann í næstu bæjarferð – preferably eftir að ég kem heim svo ég geti knúsað þig aðeins líka ;)

  6. ari Says:

    Ahhh…Karen…segi ég með söknuð í hjarta…eða…stundum allavega ;-)

Leave a Reply