Lazarus.

Það hlaut að koma að því að ég næði mér í haustpest.
Hef bankað í tré og þakkað mínum sæla fyrir það undanfarnar vikur að hafa sloppið við kvefdrulluna og hálsbólguógeðið, sem hefur herjað á sambýlinga og aðra vini og kunningja.
Fann það þegar ég var að leggjast í bólið í gærkvöldi að hálsinn var aumur og allt að stíflast.
Vaknaði svo stútfull af viðbjóði og með tvær golfkúlur í stað hálskirtla og er búin að drekka nokkra bolla af mýkjandi tesulli í morgun.
Oj bara.  Vonandi verður þetta stutt heimsókn hjá fröken Pest.

3 Responses to “Lazarus.”

  1. Ragnheiður Says:

    Æj æj, láttu þér nú batna sem fyrst Elsa mín.

  2. Herdís Says:

    vaknaði líka í morgun með hálsbólgu og hor. voðalega erum við samtaka í þessu;) láttu þér batna. knús.

  3. Þórey Sif Brink Says:

    ég er að fá e-n vibba í nefið…vonandi nær það ekki í hálsinn. það er reyndar örugglega þessu kalda loftslagi í íbúðinni að þakka. mér er hlýtt úti…

Leave a Reply