Afmælisdagur.
Eftir því sem ég eldist geri ég mér betur og betur grein fyrir því hvað ég hef verið heppin í lífinu.
Ég hef stundum sagt það í hálfgerðu gríni að ég skammist mín fyrir það hvað ég hef haft það gott.
Af hverju er mikið á suma lagt þegar aðrir fá að fljóta í gegnum lífið á janfauðveldan hátt og ég hef gert hingað til?
Ég á ótrúlega gott bakland.
Það er það mikilvægasta af öllu. Þegar eitthvað bjátar á er svo miklu auðveldara að takast á við það með fólkið sitt sér við hlið.
Pabbi minn á afmæli í dag.
Hann er ótrúlega gott eintak af foreldri.
Alltaf til staðar og kletturinn minn.
Takk elsku pabbi og elsku mútta fyrir að vera til.
Ég hefði ekki getað valið betra sett.
Litli bróðir er ekki sem verstur heldur – ég er fegin að hann valdi sér sama par og ég ![]()
Til hamingju með daginn gamli minn.
nóvember 18th, 2006 at 12:55
Ég hef oft hugsað það sama og þú… ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fæðst inn í þessa yndislegu fjölskyldu mína… þvílík heppni í raun og veru. Maður hefði alveg eins geta fæðst inn í einhverja bláfátæka afríska fjölskyldu… eða ennþá verra dæmi, maður hefði alveg getað fæðst sem hagamús eða maur… hehe
!!! Annars þvílík heppni…
Til hamingju með pabba þinn…:)
nóvember 19th, 2006 at 12:18
Mikið sakna ég þín elsku Elsa mín. Þú ert ef til vill fjölskylduræknasta manneskja sem ég þekki. Þú hefur stórt og fallegt hjarta. Þetta verðskuldar ljóð.
Elsa knúsar heiminn
og heimurinn knúsar hana
enda á hún það skilið
Djöfull getur litli bróðir verið væminn
nóvember 19th, 2006 at 17:29
til hamingju með pabba
nóvember 20th, 2006 at 01:14
ég sá væmna bróðurinn í sjónvarpinu áðan að fylgjast með “stjörnunum” taka á móti fallegum styttum sem þær máttu eiga. af hverju stökk hann ekki upp á svið og bara kynnti og afhenti öll verðlaunin? þá hefði þetta nú verið skemmtilegt!
Til hamingju, pabbi elsu og mimma, með daginn. afmæli eru af hinu góða.
nóvember 22nd, 2006 at 11:03
Ekkert smá sætt sem hann Mimmi bróðir þinn skrifaði um þig! Ef þetta er ekki bróðurkærleikur og væntumþykja þá veit ég ekki hvað það er!!! Þú ert reyndar yndisleg manneskja Elsa mín og forréttindi að hafa fengið að kynnast þér
nóvember 23rd, 2006 at 12:53
hæ sæta ! : )
langt síðan ég hef heyrt í þér rakst á síðuna þína þegar ég googlaði nafnið mitt ; ) hehehehe
en vona að þú hafir það sem allra best,
þarf að drífa mig í tíma !
love,
Terry
nóvember 24th, 2006 at 11:09
Gott að sjá að þú ert hamingjusöm.. og þakka þér kærlega fyrir að kalla mig skoðanafastan kvenskörung með vit í kollinum!