Letiblogg.
Ja hérna hér.
Enn einn föstudagurinn mættur á svæðið og bara mánuður til jóla.
3 dagar í settið og 9 í heimkomu!
Ótrúlegt hvað þessi blessaði tími líður hratt.
Ég var bænheyrð.
Kennararnir mínir ákváðu að breyta prófinu í þessum kúrsi í heimapróf, sem þýðir að ég skunda til Gautaborgar á mánudag. Fyrir utan stutta heimsókn hingað á miðvikudag er ég þá bara farin frá Skövde í bili og þarf ekki að mæta aftur fyrr en um miðjan janúar.
Þessu hefur verið ákaft fagnað undanfarna daga með tilheyrandi húrrahrópum.
Skólabækurnar hafa verið lagðar til hliðar
(þótt ég ætti auðvitað að vera að lesa um þvagfærasýkingar og lungnabólgu svo ég kunni kannski eitthvað örlítið í vinnunni í jólafríinu :/)
og ég er að þvo, þrífa og pakka í rólegheitunum.
Jólatónlistin hljómar hátt í herberginu mínu og ég syng hástöfum með og borða mandarínur.
Ég var einmitt að ræða jólatónlist við fallega skvísu um daginn og fór að hugsa um það hvaða jólalög fá pláss á topp 10 listanum mínum.
Og af því að jólin eru eftir mánuð og sumir kannski að fara að kaupa nýja jólatónlist hvað úr hverju ætla ég að skella listanum á bloggið!
Jólalagatoppurinn minn:
1. Gleði- og friðarjól – Pálmi Gunnars.
Þetta lag er búið að vera uppáhaldsjólalagið heima hjá mér frá því ég man eftir mér.
Ég á minningar um mömmu skælandi yfir því á Þorláksmessu og eftir því sem ég eldist þykir mér bara vænna og vænna um þetta lag.
2. Yfir fannhvíta jörð - Pálmi Gunnars.
(og svo var það að koma út í rosalega flottri útgáfu með honum Sigga Pálma á ”Jól með Mannakornum” – mæli með þeim báðum!)
Líka lag sem ég hef hlustað á í fleiri fleiri ár. Jólalegra gerist það ekki og ég fæ fílinginn beint í æð!
3. Grown-up Christmas List - Michael Bublé.
Þar sem ég er óheyrilega væmin og fer alltaf að skæla yfir textum þar sem maður er minntur á hvað maður á að vera þakklátur fyrir sitt fær þetta lag sæti í topp 3.
Svo syngur Michael vinur minn eins og engill og bætir aukastjörnu við lagið.
Mæli með að fólk skoði jóladiskinn hans - Let it snow.
4. Sagan af Jesúsi - Baggalútur.
Til að vega aðeins upp á móti alvörunni og koma með létta jólaandann er tilvalið að hlusta á þetta snilldarlag.
Ég grenjaði úr hlátri þegar ég heyrði textann fyrst og geri það svo sem enn, enda algjör snilld.
5. Driving home for Christmas - Chris Rea.
Þetta lag greip mig í fyrsta skipti sem ég heyrði það og hefur ekki sleppt mér síðan.
Ég skal alveg keyra heim með honum Chris ef hann syngur fyrir mig.
6. Ave Maria - Sigvaldi Kaldalóns.
Þetta lag vekur ótrúlega sterkar minningar.
Það var sungið í jarðarförinni hennar ömmu Elsu rétt fyrir jólin og ég átti erfitt með að hlusta á það í mörg ár á eftir. Núna koma bara gleðitár þegar ég hugsa um ömmu gömlu og nýt þess að hlusta á Fílharmoníuna og Diddú syngja.
7. Baby, it´s cold outside
- Dean Martin/Louis Armstrong & Ellu Fitzgerald.
Ég elska stemminguna í þessu lagi! Kemur mér alltaf í gott skap í jólastressinu!
8. Silent night - Sinead O´Connor.
Gæsahúð. Eiginlega ekkert meira um það að segja – geðveik útgáfa.
9. Ó helga nótt - Egill Ólafs og Fóstbræður.
Klikkar aldrei. Falleg rödd og hátíðlegt lag.
10. Brandenburgarkonsertarnir - J.S. Bach.
Tæknilega ekki jólatónlist – en þessi flýtur alltaf undir borðhaldinu hjá okkur á aðfangadag og er orðinn órjúfanlegur hluti af jólahaldinu.
Takk fyrir allar kveðjurnar við síðustu færslu – þið eruð öll yndisleg.
nóvember 25th, 2006 at 12:39
Sæl Elsa mín..
Jólalög eru svo yndisleg. Ég er sammála þér með Gleði og friðarjól, það er jólalag nr. 1 2 og 3… en hefuru heyrt Ó helga nótt eða O holy night með Celine Dion?… það er svo miklu flottara
Í jólalagaspjallinu okkar þá gleymdi ég einu jólalagi (þetta er samt ekki beint jólalag en er samt alltaf spilað á jólunum).. það er lagið “sameinumst hjálpum þeim”, ég fæ alltaf tár í augun þegar ég heyri það
Ég gleymdi líka Little christmastree með honum Micheal Jackson, það er svo átakanlegt og lagið svo fallegt…
Takk fyrir öll spjöllin síðustu daga, þú ert yndisleg Elsa mín
nóvember 26th, 2006 at 18:57
má ekki gleyma heldur White Christmas með Bing Crosby – og bara með honum
nóvember 26th, 2006 at 22:35
Ég veit!
Það var ógeðslega erfitt að velja bara 10 svo ég þurfti að skera helling af!
nóvember 27th, 2006 at 15:37
Sammála þer með jólalaga listann! Yfir Fannhvíta jörð með Pálma hefur verið ð mitt uppáhaldsjólalag síðan ég var lítil stelpa og enginn syngur betur Ó helga nótt heldur en hann Egill. Lag sem alltaf stendur fyrir sínu er líka White Christmas með Wham…! Svo er fullt, fullt af öðrum frábærum jólalögum. Takk fyrir bráðskemmtileg blogg elsku Elsa mín. Sjáumst, þín ann.a