Archive for nóvember, 2006

Árstíðaskipti.

Posted in Blog on nóvember 1st, 2006 by Elsa

Árstíðaskiptin hérna í Sverige eru ótrúleg.
Það gerist allt svo hratt og mörkin eru ótrúlega skýr.
Í gær var haust.
Alveg dæmigert íslenskt haustveður:
10 gráðu hiti, grenjandi rigning og rok.
Í dag er hins vegar vetur.
Snjór og hálka, tveggja gráðu frost og nagandi vindur.
Svona er þetta líka á vorin.
Einn daginn er bara allt í einu allt í blóma, býflugurnar mættar á svæðið og fólkið komið í sumarfötin.

Ekki alveg sama upplifun og heima á Fróni, þar sem árstíðirnar
renna allar saman í einn hrærigraut!