Jólablús
Posted in Blog on desember 22nd, 2006 by ElsaÉg er búin að vera eitthvað illa stemmd undanfarna viku og hef ekki nennt að blogga.
Það hefur svo sem ýmislegt skemmtilegt gerst.
Ég fór t.d.á Jólasöngva í Langholtskirkju – að hlusta á hana Þóreyju þenja raddböndin með kórnum og flotta einsöngvara syngja jólin inn.
Sama laugardagskvöld var matarklúbburinn endurvakinn hjá Erlu Perlu og bauð hún upp á fáránlega góða salsasúpu. Ef þið eruð góð skal ég fá uppskriftina og bjóða ykkur í mat
Erla og Jónas nærðu okkur Þóreyju svo aftur í fyrradag og við tróðum í okkur hangiketi og meððí og hlustuðum á Katrínu Önnu fara á kostum!
Við Hilmir fórum í jólatrjáaleiðangur í dag. Við fórum í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar eins og venjulega og féllum alveg fyrir aumingjalegu jólatré með mikinn karakter. Tréð heitir Snærfríður og hún er núna í sparifötunum inni í stofu.
Njótiði nú síðustu daganna fyrir þessi jól og ekki ofkeyra ykkur í þrifum, bakstri og jólagjafakaupum!