Kominn tími á eins og eina færslu??!
Afsakið bloggletina undanfarið. Er komin heim á klakann í kuldann og er alsæl með það
Átti yndislegan tíma í Gautaborg og Stokkhólmi með mömmu og pabba, verslaði eins og ég fengi borgað fyrir það og kláraði megnið af jólagjöfunum. Húrra fyrir því. Nú ætla ég bara að njóta aðventunnar, borða piparkökur, drekka glögg og knúsa fólkið mitt.
Og reyndar læra heilan helling og vinna svolítið, en það er bara gaman. Sit í þessum skrifuðu orðum í Miðstöð heimahjúkrunar uppi í Mjódd. Líst vel á þetta allt saman og ætla að skella mér í vitjanir eftir eins og nokkrar mínútur. Alltaf gaman að sjá nýjar hliðar á framtíðarstarfinu og ég held að þessi sé fjölbreytt og skemmtileg.
Ég er sem sagt alive and kicking og að komast í rútínuna hérna heima. Fór m.a.s. í ræktina í gær og tók á því! Er með gamla símann minn eins og venjulega ef þið viljið ná í mig.
Ætla að þjóta út og lækna fólkið!
desember 6th, 2006 at 10:17
Velkomin heim elsku Elsa mín! Láttu endilega sjá þig hérna. Gott að vita til þess að það sé góð stelpa að sinna þeim sem veikir eru
Hafðu það sem best, þín Anna.
P.S. Dáist að þér fyrir að hafa drifið þig í ræktina…. !