Hjúkkublogg!
Er ekki við hæfi að skrifa eins og eina færslu á vaktinni og standa undir nafni á þessu bloggi??!
Ég er á fyrstu kvöldvaktinni á Barnaspítalanum síðan í september. Það er bara slatti að gera og ég er aaaalveg að komast inn í þetta allt saman aftur
Ég er búin að hlakka til að mæta hingað aftur síðan ég fór út í haust, enda frábært starfsfólk og góður andi. Eins gaman og þetta er hlakka ég lítið til að vakna í fyrramálið, enda rosalega erfitt að ná sér niður og sofna einn, tveir og sautján eftir svona húllumhæ.
Helgin er annars búin að vera alveg ágæt. Skellti mér í geðveikina í Kringlunni og seldi fólki búsáhöld og gjafavöru í gærdag og slappaði svo af í góðum félagsskap í gærkvöldi.
Á morgun tekur við vika númer 2 í heimahjúkruninni, þar sem ég fæ að sjá alla flóruna á hverjum degi og vel það. Merkilegt hvernig sama starfið getur haft svona gjörólíkar hliðar og áherslur. Frábært framtíðarstarf, fjölbreytt og skemmtilegt og býður upp á eitthvað nýtt á hverjum degi. Annars yrði ég fljótt geðveik, enda ekki þekkt fyrir að hanga lengi í sama farinu