Gott och blandat.

Mér liggur ýmislegt á hjarta í dag.

Í fyrsta lagi er ég orðlaus.
Hvað er að koma fyrir þjóðina? Hvernig dettur nokkrum manni í hug að bölsótast út í lokanir á vegi í kjölfar umferðarslyss?  Ég á bágt með að trúa því að fólk geri svona lagað og ég vona að hlutaðeigandi skammist sín.  Ofan í tær.

Í öðru lagi er ég glöð.
Ég er glöð að sjá hvað Latabæ gengur vel og hvað litla barnið hans Magga (sem var á fóstur- og nýburaskeiðinu þegar ég var að vinna hjá honum) vex og dafnar vel.  Latibær er að verða vinsæll í Svíþjóð og ég verð alltaf jafnglöð í hjartanu þegar ég sé diskana í búðinni :D

Í þriðja lagi er ég tónlistarfíkill.
Ég mæli með nýútkomnum diski, sem heitir Stories og er fyrsti diskurinn hans Sigga Pálma.
Ótrúlega falleg, melódísk plata, sem ég veit að margir af lesendum
síðunnar myndu fíla í botn.
Kíkiði endilega á síðuna hans, hlustiði á lögin þar og skellið ykkur svo út í búð og kaupið eintak!

Í fjórða lagi er ég sorgmædd.
Ég er eins og áður hefur komið fram í verknámi í heimahjúkrun.  Þetta er andlega erfiðasta verkefnið hingað til í náminu og ég er að reyna að melta allt sem ég sé.  Mér finnst ömurlegt að sjá við hversu bágbornar aðstæður margir aldraðir og sjúklingar búa og mér verður illt í sálinni að vita til þess hversu erfitt lífið er á sumum heimilum í desember.
Vissulega er margt af fólkinu búið að mála sig út í horn og skapa sér þessar aðstæður sjálft, en það á enginn skilið að vera aleinn í heiminum, vina- og vandamannalaus og svangur og kaldur í þokkabót.

Í fimmta lagi er ég hress.
Hvað segið þið í jólastressinu??

3 Responses to “Gott och blandat.”

  1. Ragnheiður Says:

    Það er prófstress hjá mér, jólastressið kemst ekki að!!!

    En já ég er sammála með plötuna hans Sigga. Þetta eru svo fallegar melódíur hjá honum og algjör unaður að hlusta á þau spiluð og sungin svona vel :)
    Heyrumst skvís.. :)

  2. Þórey Sif Says:

    hva, er eitthvað stress?? ég tók þá ákvörðun í gær að hætta stressinu, enda búin í prófum, og bara leyfa öllu draslinu að flæða í gegn á sem afslappaðastan hátt. this too will pass..

  3. Ragnheiður Says:

    jæja, hvað segirðu um að blogga..;)

Leave a Reply