Jólablús

Ég er búin að vera eitthvað illa stemmd undanfarna viku og hef ekki nennt að blogga.
Það hefur svo sem ýmislegt skemmtilegt gerst.
Ég fór t.d.á  Jólasöngva í Langholtskirkju – að hlusta á hana Þóreyju þenja raddböndin með kórnum og flotta einsöngvara syngja jólin inn.

Sama laugardagskvöld var matarklúbburinn endurvakinn hjá Erlu Perlu og bauð hún upp á fáránlega góða salsasúpu.  Ef þið eruð góð skal ég fá uppskriftina og bjóða ykkur í mat ;)  Erla og Jónas nærðu okkur Þóreyju svo aftur í fyrradag og við tróðum í okkur hangiketi og meððí og hlustuðum á Katrínu Önnu fara á kostum!

Við Hilmir fórum í jólatrjáaleiðangur í dag.  Við fórum í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar eins og venjulega og féllum alveg fyrir aumingjalegu jólatré með mikinn karakter.  Tréð heitir Snærfríður og hún er núna í sparifötunum inni í stofu.

mynd

mynd

Njótiði nú síðustu daganna fyrir þessi jól og ekki ofkeyra ykkur í þrifum, bakstri og jólagjafakaupum!

One Response to “Jólablús”

  1. Kristín Says:

    Hæ sæta ! Vona að þú sért komin heim heil til Sverige. Hlakka til þegar þú kemur heim aftur á Frón. Knús og kram.

Leave a Reply