Halló fallega fólkið mitt.
Pabbi skammaði mig í dag fyrir að vera ekki nógu dugleg að blogga.
Ætli ég reyni ekki að bæta úr því og henda fram eins og einni færslu, enda kannski kominn tími til!!
Ég er komin aftur til Skövde eftir skrautlegt og skemmtilegt jólafrí á Fróni.
Ég var í verknámi í heimahjúkrun, fannst það fínt framan af en var komin með nóg undir lokinn. Ætli þetta eigi ekki betur við kellur, sem hafa verið lengi í starfi og er farið að langa í meiri rólegheit.
Ég vann líka nokkrar vaktir á bráðamóttökunni á Barnaspítalanum og þar var gaman eins og venjulega.
Ég er alltaf meira og meira viss um að ég er búin að finna minn stað á hillunni minni og ég get ekki beðið eftir að komast heim og fá að byrja að vinna.
Annars fór jólafríið í að hitta vini og vandamenn. Kvenfélagið Clueless fór út að borða og í sumarbústað á milli spilakvölda og kaffihúsaferða. Þær eru alltaf jafnótrúlega sætar og yndislegar þessar elskur og þegar myndasíðan mín kemst í gagnið aftur ættuð þið endilega að kíkja við og líta dýrðina augum!
Jólunum eyddi ég með gamla settinu og litla bróður. Rjúpurnar hafa aldrei verið betri, sósan hans Mimma var stórfengleg og ég er ekki frá því að Waldorfsallatið og brúnuðu kartöflurnar hafi bara heppnast ansi vel hjá mér í ár!
Áramótin voru jafnljúf og amma gamla var hjá okkur fram yfir miðnættið.
Ég grenjaði aðeins á miðnætti líkt og undanfarin ár,
en eftir að ég jafnaði mig kíktum við til vinafólks okkar og áttum með þeim notalega stund fram undir morgun.
Nú er svo að skella á síðasta hrinan í Sverige í bili og um að gera að taka hana með trompi.
Ég eignaðist á dögunum enn einn nýja sambýlinginn.
Þessi skvísa er 22 ára, fædd og uppalin í Rúanda, en hraktist þaðan
í þjóðarmorðunum 1994.
Hún talar frábæra sænsku eftir að hafa aðeins verið hérna í 3 ár og var að byrja að læra hjúkrun í háskólanum. Það verður fróðlegt að heyra söguna hennar og kynnast henni betur.