Jahérnahér.
Þegar ég vaknaði í morgun var ég svolitla stund að átta mig á því hvar ég var.
Ég var komin úr náttfötunum og í lopapeysu og joggingbuxur, búin að sækja ipodinn minn fram í stofu og koma mér makindalega fyrir með sængina mína í hægindastólnum.
Ég hélt ég væri alveg hætt að gera undarlega hluti í svefni, en ég hef greinilega verið busy í nótt…
Fegin bara að ég lét svona æfingar vera um helgina, þegar það gisti veðurteppt fólk í herberginu mínu!
janúar 17th, 2007 at 12:10
Loksins ertu farin að blogga aftur! Kominn tími til góða! Þú varst ekki að láta sjá þig hér í efri byggðum meðan á dvölinni þinni hér stóð! En vertu dugleg að blogga, ég er mjög dugleg að kíkja á síðuna þína! Lofaði þér því að ég skyldi fylgjast með og við það stend ég! Hafðu það sem best og gangi þér vel. Þín Anna.
janúar 17th, 2007 at 19:58
Fyrigefðu Anna Panna. Ég var alltaf á leiðinni en það var bara of mikið að gera!
Lofa að kíkja á ykkur þegar ég kem heim í mars…