Janúarveikin.
Ég þjáist af janúarveikinni á háu stigi.
Einkenni: ólýsanleg þreyta.
Ég er alltaf þreytt. Vakna þreytt eftir 8 tíma svefn, legg mig yfir daginn og sofna svo dauðþreytt klukkan 22:00. Mikið hlakka ég til þegar fer að birta almennilega.
Það gæti líka haft eitthvað með þessa þreytu að gera að ég er í leiðinlegasta kúrsi sem til er. Ég er alveg viss um það! Hann heitir Omvårdnadsforskningens teori och metod II og er undirbúningur fyrir lokaritgerð.
Bækurnar eru svo erfiðar að ég les setningu á ensku, þýði yfir á sænsku,
skil ekki sænsku þýðinguna, þýði yfir í íslensku en er engu nær.
Hvað gera bændur þá??!
Í gær gerði ég tilraun til að létta lundina og vakna almennilega.
Byrjaði á að hitta Lindu samstúdent í bænum í hádeginu og rölti um í góða veðrinu,
borðaði súpu og hafði það gott.
Við ákváðum svo að hún og Linda nr 2, sem er með okkur í skólanum líka,
myndu kíkja til mín um kvöldið í sjónvarpsgláp og almenna vitleysu.
Ég ákvað að leggja mig þegar ég kom heim svo ég hefði orku fyrir kvöldið.
Ég skellti í kjúklingapottrétt og meððí og við áttum fína kvöldstund.
Þar til klukkan ellefu þegar mér var orðið illt í líkamanum sökum þreytu!
Ótrúlegt alveg.
Matseðill vikunnar hefur verið endurskoðaður og aukaskömmtum af grænmeti og ávöxtum bætt inn til að reyna að bæta úr þessu ástandi.
Ég fjárfesti líka í vítamínbombu. Það hlýtur að hjálpa!
janúar 20th, 2007 at 16:29
Hæhæ, já mér líst vel á vítamín…ginseng eða e-ð. ég held ég sé líka með þessa veiki, þvælist bara fyrir sjálfri mér og kem engu í verk sökum leti. en jæja, stundum verður maður að sætta sig við þetta…því stundum er maður jú nokkuð duglegur!
hnje..
annars er ég að fara að senda þér meilið, þú veist, það sem við töluðum um…
Hafðu það gott í kúrsinum þínum
janúar 20th, 2007 at 19:10
já. kannast við þetta. hef ekki komið miklu í verk í janúar! ætla að taka næstu viku með trompi. hreyfa mig aðeins á morgnana, fara í góða sturtu, borða hollan og góðan mat og taka vítamín. þá hlýtur lærdómurinn að komast í gang! orkukveðjur til þín eslukrútt. knús, Herdís.
janúar 21st, 2007 at 19:14
Ótrúlega sammála með Janúarveikina! Reyndar dregst alveg fram í febrúar hjá mér
Ótrúlega gaman að “heyra” í þér og auðvitað munum við eftir þér! Á pottþétt eftir að kíkja hingað inn oftar
janúar 22nd, 2007 at 12:43
Sammála þér með janúarveikina! Hvernig væri að skella inn uppskriftinni að kjúklingapottréttinum bara svona við tækifæri? Gangi þér svo annars vel í skammdeginu! Anna.
janúar 22nd, 2007 at 13:06
Ég er alveg á því að birnirnir séu lang sniðugastir. Bara leggjast í hýði yfir veturinn, sofa þessi leiðindi af sér