Pirringur.

Af hverju þarf útsendingakerfi rásar tvö á netinu að klikka á svona tímapunkti?
Ísland – Frakkland á fullu og ég get ekki fylgst með.  Það er fúlt fyrir mig, en kannski ágætt fyrir landsliðið þar sem allir leikir, sem ég hlusta á, tapast.
Bömmer.

Takk fyrir kommentin við síðustu færslu, það er gott að sjá að ég er ekki ein með þennan sjúkdóm.
Ég held þó að mitt tilfelli sé að lagast og þakka það bætiefnaáti, ávöxtum, grænmeti og göngutúrum með hljóðbók í ipodinum.  Bendi ykkur, sem ekki hafið séð ljósið, á snilldina við hljóðbækur.  Að láta lesa fyrir sig spennandi sögu á meðan maður vaskar upp, labbar út í búð, fer í þvottahúsið eða bara slappar af er alveg brilljant!  Núna er ég að hlusta á Mannen som dog som en lax eða Maðurinn sem dó sem lax eftir Mikael Niemi.  Ég kolféll fyrir fyrstu bókinni sem ég las eftir hann: Populärmusik från Vittula eða Rokkað í Vittula og mæli með að allir bókaunnendur nái sér í eintak af henni.

Tónlistin sem bjargar geðheilsunni þennan mánuðinn er Nordisk Vinternatt með Sissel Kyrkjebo.  Ótrúlega fallegur og harmonískur diskur.  Mæli með honum…

Uppfært:
Ég vil þakka Sylvíu Björk sætu frænku minni fyrir að lýsa leiknum í beinni á msn og bjarga mér!   Af hverju þurfti ég að missa af þessum leik?! Af hverju var þetta ekki bilað í gær?!
Jæja, sigur.  Ole Ole Ole Ole.

2 Responses to “Pirringur.”

  1. Dagný Ásta Says:

    ég ELSKA hljóðbækur, þær eru tær snilld!!! sérstaklega ef sá sem les er almennilegur :) hef stundum lent á bókum þar sem lesandinn er bara horror ;)

  2. Þórey Sif Says:

    og það var sigur!! heldur betur…bravó!
    alltaf gott að hlusta á harmoníska tónlist..

Leave a Reply