Útivist.
Ég bauð mér í sunnudagsheimsókn til Önnu, Jóhanns og gríslinganna.
Við skelltum okkur í gönguferð, renndum okkur á sleða og kaffærðum okkur í snjó.
Í þessum skrifuðu orðum sitjum við öll þrjú við eldhúsborðið, með kaffi (!) í bolla og sitt hvora tölvuna.
Talandi um nútímavæðingu.
Myndasíðan er up and running að nýju, bendi á hana og nokkrar nýjar myndir hér til hægri.
janúar 29th, 2007 at 21:19
En sæt mynd:) og alltaf jafngaman að skoða myndasíðuna þína:) var að skoða londonmyndirnar (enn og aftur) og ó mæ god hvað ég hlakka til barcelona;) knús. herdís.