Í blíðu og stríðu

Merkilegt hvað íþróttaleikur getur haft mikil áhrif á mann.
Ég fór til Axels og Ingibjargar í gær að horfa á leikinn með nokkrum SkövdeÍslendingum. Þrátt fyrir sár vonbrigði verð ég bara að þakka liðinu fyrir frábæra skemmtun
og ótrúlegan baráttuanda.
Þetta var hrein óheppni, bæði liðin gátu unnið þennan leik og því miður spilaðist hann eins og hann gerði.
Ég er stolt af þessum strákum og þjóðremban situr ennþá í mér, daginn eftir leik.
ÁFRAM ÍSLAND.

Í kvöld fær keppnisskapið enn meiri útrás því blásið hefur verið til spilakvölds á Sturegatan.
Allt of langt síðan spilað var í Skövde og hér verður eflaust stuð.
ÁFRAM ÍSLAND.

3 Responses to “Í blíðu og stríðu”

  1. Anna Says:

    Úrslitin í gær voru grátleg, við hefðum svo sannarlega átt að vinna þennan leik!! Fróðlegt að sjá hvernig fer á morgun hjá okkur. Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt og fínar myndirnar af ykkur Önnu Ýr og krúttlingunum hennar :)

  2. Annika Says:

    Hej!
    Besöker din sida för jag tycker den är så fin. Hoppas du mår bra och inte saknar Island för mycket! Saknar dig på föreläsningarna, men nu är det ju slut på dem i alla fall! Bara seminarier kvar. Jag söker jobb för fullt, var på sjukhuset idag. Hjärtmedicin och KAVA, ska till MAVA och Akuten i morgon. Hörde att du fått jobb, vad kul!
    KRAMAR Annika

  3. Kristjón Says:

    Þetta var roooosalegur leikur, þvílíkt sjokk að missa hann svona.

    En strákarnir eiga heiður skilið, alveg ótrúlegt hvað þeir voru þrjóskir og náðu góðu comeback eftir erfiðan leik. Við vorum bara óheppin í framlenginunni… hefði getað gerst fyrir bæði liðin!

    Við tökum þá bara næst ;)

Leave a Reply