Jæjajá.
Posted in Blog on mars 29th, 2007 by ElsaNú skal þetta blogg rifið upp úr aumingjaskapnum!
Þá er lífið á Fróni að færast í fastar skorður. Byrjaði í verknámi á lyfjadeildinni á Barnaspítalanum í gær og líst vel á að vera þar í 4 vikur samhliða vinnunni á bráðamóttökunni – 2 ólíkar hliðar á sama teningi. Ég hef alltaf stefnt á að sérmennta mig í barnahjúkrun og þá krabbameinshjúkrun svo það verður gaman að sjá hvort þetta verður ennþá jafnspennandi eftir mánuð!
Ég er nú búin að gera ýmislegt annað en vinna og læra undanfarnar vikur. Ég átti afmæli og fékk skvísurnar mínar í afmælispizzu og spjall – virkilega notalegt og ég vildi að ég ætti afmæli einu sinni í mánuði. Þá væri ég orðin 324 mánaða og bara hálfur mánuður í næsta afmæli!
Ég lofaði sjálfri mér að vera dugleg að sinna menningartengdum áhugamálum og þetta byrjar ágætlega. Fór að sjá litla bróður leika í einni senu í skólanum á afmælisdaginn. Auðvitað var hann langbestur og flottastur (kalt mat). Hann fékk stóru systur svo til að skæla smá með því að fá bekkjarfélagana til að syngja afmælissönginn. Langflottasti afmælissöngur sem ég hef heyrt. Reyniði að toppa þetta á næsta ári!
Síðastliðið sunnudagskvöld fór ég svo að sjá sýningu Óperustúdíósins á Systur Angelicu og Gianni Schicchi eftir Puccini. Skemmti mér mjög vel og finnst þetta frábær sýning. Gaman að sjá nemendur setja upp svona vandað og vel gert sjóv og ég hlakka til að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Í gærkvöldi eignaðist ég svo formlega nýtt áhugamál.
Eins og allir sem þekkja mig eitthvað ættu að vita finnst mér afskaplega gaman að dansa við góða tónlist. Ég hef saknað þess mikið undanfarin ár að dansa almennilega en í gær opnaðist nýr heimur.
Ég er orðin official salsaaðdáandi. Jói dans dró mig (þurfti svo sem ekki að draga fast) á fund og svo í opinn tíma hjá Salsa Iceland. Ég kunni varla stakt spor en var furðufljót að ná þessu og fann bara efedrínið sprautast í kroppinn og gleðina taka völdin! Þar sem það er oft svolítið erfitt á þessu litla skeri að halda úti svona starfsemi eins og Salsa Iceland er að gera ætla ég hér með að auglýsa SALSAKVÖLD á Glaumbar mánudagskvöldið 2. apríl. Það þarf ekkert að kunna því boðið er upp á ókeypis byrjendanámskeið klukkan átta og svo er bara suðræn sveifla fram eftir kvöldi. Hljómar þetta ekki svakalega vel? Hélt það, og hlakka til að sjá ykkur öll á mánudaginn
Svo má kíkja á heimasíðuna www.salsaiceland.com og skoða myndir og fleira. Arriba!!