Næturvaktarblús.
Halló góða fólk. Eru ekki allir löngu hættir að kíkja hingað inn? Það bara hlýtur að vera.
Leitun að leiðinlegra bloggi og því miður verð ég að hryggja ykkur með því að það batnar ekkert í nótt
Lífið mitt er frekar einsleitt þessa dagana og gengur út á lokaverkefni, vinnu og svefn. Í þessari röð. Þess á milli fer ég í skemmtilegustu leikfimi í geiminum hjá henni Unni minni í World Class. Ef ykkur langar í dansandi fjör þrisvar í viku mæli ég með World Class Salsa mánudaga og miðvikudaga og svo Dirty dancing á föstudögum. Gargandi snilld og heldur mér sæmilega heilli á geði.
Svo er það bara lokaspretturinn í skólanum – skil 15.5. Fram að því verð ég áfram óviðræðuhæf. 18. maí er fræðsludagur á bráðamóttökunni og þá skal slett ærlega úr klaufunum. Goran Bregovic ætlar að skemmta okkur bróður mínum á Listahátíð 19. maí og þá heimta ég líka afmælispartý Þórey. Svo er það bara Sverige.
Familían ætlar að koma og horfa á mig útskrifast og við ætlum að nota tækifærið og njóta Svíþjóðar í vorblíðunni. Liseberg og Kungsportsavenyn í Gautaborg, Gamla Stan og útikaffihús í Stokkhólmi verða fyrir barðinu á okkur og að sjálfsögðu ætla ég að knúsa gemlingana mína í leiðinni. Ágætisútskriftarferð það!
Nú er það bara næturvakt númer 2 sem blívar og ég ætla að vinda mér í að fara yfir lyfja- og ælubakkastatusinn hér á bæ.
Ha det bra!
maí 7th, 2007 at 14:51
góður
maí 8th, 2007 at 15:57
Heyri þá í þér 15.maí sæta….
maí 10th, 2007 at 12:36
Reglulega gaman að fá blogg frá þér elsku Elsa mín
Nú styttist í stóra daginn hjá þér, verður nú aldeilis gaman! Njóttu þín vel í Svíþjóð, sendi þér mínar bestu kveðjur, þín Anna.
maí 11th, 2007 at 13:54
gangi þér vel með lokaverkefnið sæta. hlakka til að knúsa þig í júní:)