Stundum er lífið svoooo skemmtilegt!
Ég er súperglöð í dag!
Byrjaði daginn reyndar ekki vel – var á hálfgerðum bömmer yfir því að vera ekki að gera helminginn af því sem mig langar að gera. Skoðaði síðu eftir síðu á netinu um dansskóla og ferðalög og pældi í því hvort ég ætti að slá íbúðakaupunum á frest og leggjast í ferðalög og læra að dansa. Kíkti meðal annars á heimasíður Shane Sparks, Miu Michaels og Dan Karaty, sem öll eru danshöfundar og dómarar í uppáhaldssjónvarpsþættinum mínum: So you think you can dance.
Koma svo skemmtilegheitin. Kíkti fyrir rælni á heimasíðu World Class og haldiði að þar standi ekki bara stórum stöfum að áðurnefndur Dan Karaty komi til landsins í júlí og bjóði upp á námskeið??! Ég dreif í að skrá mig og borga og fattaði ekki fyrr en eftir á að þetta er næturvaktahelgi hjá mér. Mér er alveg sama, ég sef bara þegar ég er gömul.
Ég hef ákveðið að taka þessu sem merki að handan – ég held áfram að vinna vinna vinna, dansa líka en bara hér heima á Ísalandinu og eignast svo sæta holu með haustinu.
Þetta er gaurinn:

júlí 19th, 2007 at 03:19
Hæ kjútípæ! Vorum að enda við að horfa á SoYouThinkYouCanDance þar sem Dan þinn Karaty samdi eina hiphop rútínuna. Geggjaðir þættir.
Hvenær er dansnámskeiðið?? Annars er swing dancing úti á Lincoln center fyrir framan óperuna í allt sumar með svaka bandi og látum…svona til að reyna að freísta þín. ég myndi fara með þér þangað
allavega, góða skemmtun að dansa!! miss u.
Þórey, og herdís says hi
júlí 20th, 2007 at 10:29
Elsku besta Elsa mín!! Loksins ertu farin að blogga aftur! Ekki hætta því, það er svo gaman að lesa skrifin þín og fylgjast með þér! Þú nýtur þín örugglega að vinna sem hjúkrunarfræðingur og það vantaði svo sannarlega FRÁBÆRAN hjúkrunarfræðing í þá stéttina
Sjáumst kátar og hressar, þín Anna bloggaðdáandi
ágúst 8th, 2007 at 11:09
Elsa litla ofurkrútt!! Þú ert engan veginn að standa þig í bloggskrifum!! Er ekki ný færsla væntanleg?? Það hlýtur bara að vera eitthvað spennó að gerast hjá þér…!! Kveðja, Anna.
ágúst 22nd, 2007 at 10:33
Ókei, er ekkert að gerast hjá þér Elsa skvís eða ertu bara hætt að blogga?? Ég er bara að forvitnast…. Kannski er nóg að gera hjá þér en það væri gaman að fá fréttir af þér nurse Elsa. Kær kveðja, Anna.
ágúst 26th, 2007 at 01:51
HÆ sæta mín,
hér færðu net-knús, ég held kannski að þú sért að dansa þessa helgina….
er búin að vera að láta mig dreyma um að skella mér í dansskóla sjálf, en sé kannski ekki alveg fram á að það rætist, er nokkuð öldungadeild í svoleiðis hehe
Jæja,
verðum að fara að hittast sæta, ég á lítinn mann sem hefur aldrei séð þig og það gengur náttúrulega enganveginn
Love you kidó
Halla
ágúst 28th, 2007 at 00:01
Sæl Elsa! Rakst á síðuna þína… frábært að vita af því að þú sért með blogg
Þakka góðar stundir í dansinum um liðna helgi, og takk líka fyrir allar reddingarnar með SYTUCD!
Kveðjur úr Grindavíkinni,
Erla Ósk
ágúst 29th, 2007 at 01:43
jæja, þá er dansnámskeiðið afstaðið…og hvernig var þá??
koma svo..
október 14th, 2007 at 14:50
hvaða fólk er nú þetta..?
október 15th, 2007 at 09:15
Jæja elsku Elsa mín! Kíkti að gamni mínu inn á síðuna þína til að sjá hvort þú værir ekki búin að blogga heilmikið en ónei ónei ónei, ekkert blogg frá þér enn. Hvernig væri nú að fara að skrifa eitthvað??? Mikið var annars gaman að sjá þig þegar þú komst hingað í efri byggðirnar
Láttu nú heyra frá þér
Og ég spyr bara líka, hvaða fólk er að skrifa þarna að ofan?? Kær kveðja í biil, þín Anna.
nóvember 14th, 2007 at 14:08
Hæ hæ! Það er alveg með ólíkindum hvað margir með furðuleg nöfn eru að skrifa á síðuna þína!!! Segðu mér annars, ertu alveg hætt að blogga? Fer alltaf öðruhvoru inn á síðuna þína (eins og sést af mínum skrifum) og kvitta auðvitað fyrir mig í leiðinni en elsku besta ekki halda okkur svona í óvissu með hvort þú ert hætt að blogga, ert í lööööööngu fríi frá bloggi eða hvað annað eiginlega! Sakna þess að þú skulir ekki blogga. Kær kv. Anna.
janúar 26th, 2008 at 07:38
Write your comments here, please. – I know you can write it here. Not Me