Ehemm.

Jæja gott fólk.

Nýtt ár – ný bloggfyrirheit? Held það bara!

Ég er a.m.k. á lífi og gott betur en það. Það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast – Dan Karaty er m.a.s. að koma aftur og því hálfgert Deja Vu að skrifa færslu um það! Ég er að missa mig í salsa og búin að fara 2 utanlandsferðir að nema meira í þeim fræðum. Dansfélagarnir eru á Kúbu í suðrænni sveiflu núna en ég er föst hér í íbúðapælingum, vinnu og kulda. Það verður bara Puerto Rico 2009 í staðinn, ekki spurning.

Núna er ég stödd í tölvustofunni í glænýjum skóla í Kópavoginum með henni Ásdísi vinkonu minni. Ég ákvað því að nota tækifærið og skrifa tvær línur, svona til að verkja bloggdrauginn af værum blundi. Við skulum svo sjá hvort hann snoozar mikið á næstunni eða kemst í gírinn.

Knús og kram á línuna.

One Response to “Ehemm.”

  1. Anna Says:

    LOKSINS KOM EITTHVAÐ FRÁ ÞÉR!!! Ég fór af algerri rælni inn á síðuna þína núna því mér leiðist frekar enda komin með hálsbólgu og fínerí!! Vááááá hvað ég varð glöð að sjá að þú hafðir skrifað. Vertu nú dugleg á þessu ári að skrifa, mér finnst svo gaman að lesa bloggið þitt. Og já, gleðilegt nýtt ár elsku Elsa mín og takk fyrir þau gömlu :) Heyrumst/sjáumst hressar og kátar. Kær kveðja. Þín Anna.

Leave a Reply