Furðulegur dagur.

Ég vaknaði snemma í morgun þar sem ætlunin var að eyða deginum með ömmu gömlu. Þegar ég opnaði augun og tók eyrnatappana úr eyrunum fann ég að mér var skítkalt. Ekki furða. Glugginn galopinn og góður skafl til fóta í rúminu mínu. Ég kíkti út og sá að ég og litli fallegi kagginn hennar ömmu minnar vorum ekki að fara neitt. Dagurinn tók því 180° snúning og breyttist í náttfatadag. Ég er búin að lesa eina bók, horfa á sjónvarpið og sofa og líður agalega vel undir sænginni minni (sem er orðin þurr og hlý á ný!).

Eftir klukkutíma og 5 mínútur ætla ég að vera mætt í ræktina í púl hjá Unnsunni minni. Það verður liður í að gíra mig upp fyrir kjarabaráttufund ungra hjúkrunarfræðinga í kvöld. Mér hitnar í hamsi við það eitt að skrifa þessi orð þar sem ansi margt þarf að breytast í komandi kjarasamningum til að ég verði ánægð. Það eru farnar að renna á mig tvær grímur þegar ég fæ tár í augun yfir launaseðlinum mánaðamót eftir mánaðamót (og það eru sko ekki gleðitár). Það er eitthvað súrt við að hafa loksins lokið háskólanámi, fundið draumadjobbið og draumavinnufélagana og vera farin að pæla í öðrum kostum hálfu ári eftir útskrift.

Annars er ég góð :D Eins og áður sagði er mr. Dan Karaty að koma aftur til landsins og hann tekur með sér ansi magnað fylgdarlið í þetta skiptið. Shane Sparks, Danny og Sabra (sem aðdáendur So You Think You Can Dance ættu að þekkja) elta kappann og ætla líka að kenna mér spor eða tvö. Allt í einu eru sárindin yfir að hafa “misst af” Kúbufjörinu ekki aaaalveg jafnmikil ;)

6 Responses to “Furðulegur dagur.”

  1. Dagný Ásta Says:

    jeij þú ert komin til baka ;)

    búin að sakna skrifanna þinna slatta skvís!

    kv
    Dagný Ásta

    p.s.
    ég frétti að þú værir í Salsanu með vini mínum ;) lítill og skemmtilegur heimur

  2. Þórey Sif Says:

    gott með hana!
    dansa salsa og blogga blogg :)
    áfram svona.
    kveðjur frá skrifborðinu interno 5 Ítalíu.

  3. Anna Says:

    Alla malla hvað ég er ánægð með að þú skulir vera komin aftur í bloggið! Ekkert smá gaman að lesa skrifin þín og fylgjast með þér :) Það verður aldeilis gaman þegar hann kemur hann sæti Dan :) Svo verður skemmtun eða ball ársins í haust þegar Palli Óskar verður með tónleika og ball í Höllinni, við verðum að fjölmenna þar :) Sammála þér að það er sko meira en súrt í broti að vera búin að ljúka háskólanámi og vera komin í draumavinnuna og vinna með góðu fólki, en vera að hugleiða að fara að gera eitthvað annað þar sem launin eru til háborinnar skammar!! Ég gæti alveg skrifað langan pistil um launamál en ætla að sleppa því nú, verð svo æst þegar ég hugsa um þau. Er annars sjálf að leita mér að annarri vinnu! Sit bara hérna í vinnunni og slæ inn í tölur og fæ jákvæða strauma við að lesa bloggið þitt. Í öllum bænum haltu áfram að vera dugleg að skrifa og svo vonandi förum við að sjást :) Knús og kram til þín elsku Elsa mín gleðigjafi með meiru. Hafðu það sem best. Þín Anna.

  4. Linda nurse Says:

    Blessuð
    Mikið lýst mér vel á þetta framtak ungra hj.fr!!! Það er alveg ótrúlegt hvað við höfum verið látnir gjalda þess að vera fjölmenn (kvenna) stétt með laun og önnur kjör.
    Ég var einmitt í þessum sporum að vilja grenja yfir launaseðlinum, eftir að hafa eytt 4 árum í háskóla, verið ágætis hjúkka, fórnað heilsu og venjulegu fjölskyldulífi í 12 ár.
    Ég er mjög stolt af því að vera hjúkrunarfræðingur en minna stolt af þeim launum og aðstæðum sem manni var boðið upp á.

    Hefði viljað að svona lagað hefði verið til þegar ég var ung. Það hefði kannski ekki skipt máæli, í 100% vaktavinnu og takandi 5-15 aukavaktir í mánuði (sem var standardinn þá) hefði maður líklegast ekki komist á fund:)

    Ég óska ykkur alls hins besta í kjarabaráttunni, hafandi verið í þessum hasar þá veit maður að þið eruð mikið mikið meira virði en launaseðillinn segir til um.

  5. Moi Says:

    Dagný: Hver er vinur þinn? Já, lítill er hann þessi heimur ;)

    Þórey: Góða námsstrauma, miss you already…

    Anna: Takk fyrir falleg orð :D Gangi þér vel í vinnuleit og svo loooofa ég að fara að reka inn nefið!

    Linda: Gaman að “sjá” þig hér! Takk fyrir, það er hugur í fólki núna og vonandi skilar hann sér í bættum samningum. Það er algjör synd að sjá á eftir færu fólki eins og þér úr stéttinni og í raun til háborinnar skammar fyrir ráðamenn þjóðarinnar. Þeir virðast bara aldrei ætla að sjá að sér blessaðir.

  6. Dagný Ásta Says:

    hann heitir Óli og lofaði mér því að skila kveðju til þin ;)

Leave a Reply