Reykingabann.
Mikið leiðist mér raus bareigenda og reykingafólks um reykingabannið.
Ég get ekki skilið röksemdafærslur þessa hóps. Að banna reykingar inni á skemmti- og veitingastöðum er löngu tímabært, enda veit hver heilvita maður það í dag hversu óhollt þetta er fyrir mannslíkamann.
Ef ég tek ákvörðun um það þegar ég er unglingur að reykja ekki hlýt ég að eiga rétt á því að lifa í reyklausu umhverfi. Ekki satt? Þeir sem taka ákvörðun um að reykja eiga líka sinn rétt – en ekki þar sem þeirra reykur smýgur ofan í mín lungu. Það bara gengur ekki upp.
Það er frábært að geta í dag skroppið á kaffihús eina kvöldstund og skriðið beint upp í rúm þegar heim er komið í stað þess að fara nauðbeygður í sturtu og skella öllum fötunum í þvottavél strax. Ef prumpu- og svitafýlan er að kæfa alla gæti bara verið sniðugt að fjárfesta í ilmgjöfum ýmiss konar!
Kvörtun veitingabransafólks um að sala á áfengi dragist saman og minna komi í kassana þeirra eftir að bannið tók gildi finnst mér fáránleg. Ekki hef ég tekið eftir minnkandi mannfjölda í bænum, síður en svo. Þeir ættu kannski að beita kænsku til að draga til sín kúnna ef þeim finnst að illa gangi – bjóða upp á lifandi tónlist eða jafnvel bara minnka álagninguna á áfengi um nokkra tugi prósenta!
Kannski er ég svona einföld en mér finnst þetta bara ósköp einfalt mál!
febrúar 4th, 2008 at 12:48
já, auðvitað er þetta það viðbjóðslegasta í heimi, að fara á kaffihús eða öldurhús og losna ekki við stybbuna…en við náttla eigum valið um að fara eða ekki, svona þannig. Aðal tilgangurinn með löggjöfinni að mínu viti er að vernda þá sem starfa á þessum stöðum og ég skil ekki í kráareigendum að vera ekkert að pæla í því… ekki eru allir starfsmenn kaffihúsa/bara reykingafólk.
og að vilja setja upp þessi glerhólf inni á stöðunum sem verða svo full af reyk og ógeði að fólkið sér ekki hvert annað! oj, þetta er það ógeðslegasta sem ég veit um! get ekki ímyndað mér að reykingafólk vilji þetta frekar en að fara út og næla sér þó í smá ferskt loft í leiðinni…þó því verði kalt. Hættiði bara að reykja svona mikið.
já, gott að maður viti alltaf best