Bakveiki, dansveislur og næturvaktir.

Halló halló.

Þótt lítið hafi heyrst í mér hér undanfarið hefur verið nóg að gera og gerast.

Akkurat núna sit ég á vaktinni og bíð eftir að klukkan verði átta. Er stútfull af kvefi og vitleysu – svona mátulega þegar mér er að batna í bakinu eftir erfiðar vikur undanfarið. Alveg dæmigert.

Ibi salsasnillingur kom hingað síðustu helgi og kenndi blóðheitum Íslendingum að dansa. Hann átti ekki til orð yfir veðrið frekar en svo oft áður, enda var eins og þakið ætlaði af íþróttahöllinni í MR í verstu hviðunum. Veðurstofan bað fólk að vera heima en auðvitað mættu allir á námskeið, eins og sönnum eskimóum sæmir. Þessum salsahelgum fylgir jafnan mikið stuð og mikið gaman enda skemmtilegur og breiður hópur fólks úr öllum áttum.

Næstkomandi helgi er það svo annars konar dans – hip hop/street. Það er líka fáránlega gaman og skemmtileg andstæða við mýktina og kvenlegheitin í salsanu. Folarnir, sem ætla að mæta og kenna mér og hinum um helgina, eru svakalegir tappar í dansheiminum og tilhlökkunin því mikil. Vonandi heldur bakið og vonandi (og ég ætla að biðja ykkur að krossa ykkur í bak og fyrir með mér) verður kvefið farið, því það er heldur leiðinlegra að skvetta hori á fólkið í kring ;)

Ég kom bílnum “mínum” loksins á nagla í vikunni sem leið – ekki seinna vænna! Hann hefur fengið að hvíla sig í þessum vetrarhörkum en nú er hann fær í allan sjó. Stórmagnaður 20 ára kaggi þar á ferð.

Annað er nú svo sem ekki fréttnæmt. Ég sef sem betur fer af mér þennan blessaða Valentínusardag í dag/á morgun og næ því ekki að velta mér upp úr karlmannsleysi og almennum skorti á rómantík. Er að lesa asskoti skemmtilega bók núna sem heitir “Remind me again why I need a man” og ég held að ég láti það bara vera lokaorð þessarar færslu!

Góðar stundir.

 

8 Responses to “Bakveiki, dansveislur og næturvaktir.”

  1. Ragnheiður Says:

    Kvitt, kvitt skvís… Greinilega gaman hjá þér í dansinum! Ég er sjálf komin með algjört fráhvarf af salsanu, langar svo mikið á námskeið og á salsakvöld og svona. Vona að ég sjái þig á næsta salsakvöldi á Gauknum. Man varla hvernig þú lítur út, svo langt er síðan við höfum hisst :(

    Hafðu það æðislega gott og skemmtu þér vel á hip hop námskeiðinu.

    Kv. Ragnheiður

  2. Anna Says:

    Elsku Elsa mín! Svo sannarlega skal ég krossa mig í bak og fyrir að þú verðir laus við kvefið þitt fyrir helgina, alveg andstyggilegt að fá kvef :( Gaman að heyra frá þér hérna á blogginu og svei mér þá ef ég má ekki kallast “þinn einlægi aðdáandi” :) Hafðu það sem best og skemmtu þér eins vel og þú getur – njóttu lífsins! Knús, knús og kram, þín Anna.

  3. Gyða Valdís Says:

    Hæ skvís
    Ætlaði bara að kvitta fyrir innlitið. Góða skemmtun í dansveislunni um helgina, við sjáumst trúlegast hressar og kátar á mánudaginn.

  4. Þórey Sif Says:

    langaði bara að segja til hamingju með daginn, gæskan!
    og til hamingju með hagamelinn ;)

  5. Anna Says:

    Hæ hæ! Ég bara varð að kvitta fyrir innlitið á síðuna þína! Hvernig var afmælisdagurinn þinn og til hamingju með hann þótt löngu liðinn sé!! Og hvað er verið að óska þér til hamingju með Hagamelinn? Þú sérð að ég er alveg óskaplega áhugasöm um þig þótt sumir myndu ef til vill kalla mig forvitna :) En það er bara svo gaman að fylgjast með þér elsku Elsa mín. Hafðu það sem allra best og endilega farðu að skrifa smotterí á síðuna þína nú eða bara tölvupóst…. :) Gott knús og kram til þín :) Kær kveðja, þín Anna.

  6. Herdís Says:

    ji….vissi bara ekki að þú værir búin að blogga á þessu ári;) nú má alveg fara að blogga meira:) ertu flutt? hlakka ekkert smá til að sjá íbúðina. til hamingju með þetta allt saman, sæta. knús og kossar frá ny, Herd Nerd.

  7. Anna Says:

    Gleðilegt sumar elsku Elsa mín :) Til hamingju með íbúðina þína! Það verður sko ekki leiðinlegt fyrir þig að koma þér fyrir þar og búa þér til Elsuhreiður :) Heyrumst/sjáumst, hjartans kveðja, þín Anna.

  8. Þórey Sif Says:

    hún er bara hvergi staðar, stelpan…allavega ekki hér. bo

Leave a Reply