Archive for maí, 2008

Oh my god.

Posted in Blog on maí 23rd, 2008 by Elsa

Engar yfirlýsingar um að bloggað verði af miklum móð héðan í frá, látum eina færslu í einu bara duga!

Ætli það beri ekki hvað hæst síðan síðast að ég verslaði mér eitt stykki íbúð. Keypti litla og krúttlega risíbúð á Hagamelnum og er þar með komin í hóp elítunnar á Íslandi, sem flykkist á melana í kring. Það fer alveg svakalega vel um mig þarna og ég er agalega heimakær þessa dagana, enda á fullu í hreiðurgerð. Þetta var nú ekki beint í mínum stíl þegar ég flutti og með hjálp góðra manna og kvenna breyttust bláir og bleikir veggir í hvíta og panellinn í loftinu líka. Upp úr kössunum komu túrkisbláir hlutir í röðum og ég fékk vægan aulahroll í fyrsta skipti sem ég leit á innihald kassanna dreift um stofugólfið! Alveg merkilegt hvernig þessi litur hefur dregist að mér í gegnum tíðina. Til allrar hamingju kemur þetta vel út, fínt að hafa bjarta liti í litlu rými! Það eina sem ekki er eins og það á að vera eru köngulærnar, sem eru aðeins og góðar með sig. Þær virðast smjúga inn um hverja rifu á gluggunum og það engin smáflykki. Kann einhver ráð til að halda þeim í burtu???!

Eurovision í fullum gangi og Ísland á blússandi siglingu. Ég táraðist þegar ég sá þau á sviðinu – vel sungið og flott show. Vonandi kunna sumir Evrópubúar að meta “less is more” og kjósa okkur þrátt fyrir að ekki séu stripparar, súludansarar eða sirkusfólk á sviðinu.

Ég er ennþá á fullu í salsa og hálfsvekkt yfir að þið látið ekki sjá ykkur líka :) Mig vantar alltaf fleiri herra að dansa við svo ef þið eruð karlkyns og með snefil af takti eða dansáhuga, kíkiði þá á www.salsaiceland.com og skelliði ykkur á námskeið (nú eða bara á salsakvöld á Sólon!). Þið stelpur eruð líka velkomnar, að sjálfsögðu ;)