Oh my god.

Engar yfirlýsingar um að bloggað verði af miklum móð héðan í frá, látum eina færslu í einu bara duga!

Ætli það beri ekki hvað hæst síðan síðast að ég verslaði mér eitt stykki íbúð. Keypti litla og krúttlega risíbúð á Hagamelnum og er þar með komin í hóp elítunnar á Íslandi, sem flykkist á melana í kring. Það fer alveg svakalega vel um mig þarna og ég er agalega heimakær þessa dagana, enda á fullu í hreiðurgerð. Þetta var nú ekki beint í mínum stíl þegar ég flutti og með hjálp góðra manna og kvenna breyttust bláir og bleikir veggir í hvíta og panellinn í loftinu líka. Upp úr kössunum komu túrkisbláir hlutir í röðum og ég fékk vægan aulahroll í fyrsta skipti sem ég leit á innihald kassanna dreift um stofugólfið! Alveg merkilegt hvernig þessi litur hefur dregist að mér í gegnum tíðina. Til allrar hamingju kemur þetta vel út, fínt að hafa bjarta liti í litlu rými! Það eina sem ekki er eins og það á að vera eru köngulærnar, sem eru aðeins og góðar með sig. Þær virðast smjúga inn um hverja rifu á gluggunum og það engin smáflykki. Kann einhver ráð til að halda þeim í burtu???!

Eurovision í fullum gangi og Ísland á blússandi siglingu. Ég táraðist þegar ég sá þau á sviðinu – vel sungið og flott show. Vonandi kunna sumir Evrópubúar að meta “less is more” og kjósa okkur þrátt fyrir að ekki séu stripparar, súludansarar eða sirkusfólk á sviðinu.

Ég er ennþá á fullu í salsa og hálfsvekkt yfir að þið látið ekki sjá ykkur líka :) Mig vantar alltaf fleiri herra að dansa við svo ef þið eruð karlkyns og með snefil af takti eða dansáhuga, kíkiði þá á www.salsaiceland.com og skelliði ykkur á námskeið (nú eða bara á salsakvöld á Sólon!). Þið stelpur eruð líka velkomnar, að sjálfsögðu ;)

One Response to “Oh my god.”

  1. Anna Says:

    Hæ skvís! Hélt ég hefði sett inn comment við þessa mjög svo velkomnu færslu þína, en eitthvað hefur klikkað eða ég gert einhverja vitleysu! Verð að segja þér að ég er að hætta á Heilsugæslunni og er að fara yfir á HNE deildina á Borgarspítalanum. Hlakka mikið til get ég sagt þér :) Það gerðist hratt og vel að fá vinnuna þar. Hafðu það ævinlega sem best elsku Elsa mín. Ég eeeeelska líka túrkísbláa litinn, er viss um að það er sko mikið krúttlegt hjá þér í Elsuhreiðrinu þínu :) Verðum í sambandi. Kær kveðja, þín Anna.

Leave a Reply