Stiklað á stóru
Posted in Blog on mars 14th, 2007 by ElsaÞórey kom og sótti mig til Sverige. Við skiptum tímanum niður á Skövde og Stokkhólm og nutum þess að vera til. Anna og Jóhann buðu okkur í Melodifestivalgláp og spjall og áttum við notalegt kvöld. Stokkhólmur tók á móti okkur með kulda og slabbi, en það kom ekki að sök, þar sem borgin er alltaf jafnyndisleg. Í Stokkhólmi knúsuðum við villidýrin, fórum á Moderna Museet, Nationalmuseet, urðum bílveikar í þrívíddarbíó og kíktum aðeins í búðirnar. Hápunkturinn var svo La Traviata í Konunglegu sænsku óperunni – ótrúlega skemmtileg upplifun og gaman að lyfta sér aðeins upp!
Svo komum við heim og síðan þá hefur bara verið meira en nóg að gera og gerast. Við byrjuðum á að halda upp á 10 ára vinkonuafmæli Clueless með konuboði á Babalu og ég held að allir hafi skemmt sér þrusuvel – allavegana ég og hinar klessurnar
Árshátíð Barnaspítalans var svo kvöldið eftir og þar borðaði ég ótrúlega góðan mat (mæli með Silfrinu á Borginni), tjúttaði og spjallaði við samstarfsfólkið. Frábært kvöld. Eftir þetta húllumhæ tók við spítalavinna og lokaverkefnisvinna og svolítil líkamsrækt með því.
Ég fór að sjá söngleikinn Ást í Borgarleikhúsinu síðastliðið sunnudagskvöld og mæli með því stykki líka. Snertir strengi í hjartanu manns og þótt það séu nokkrir hnökrar á sýningunni er hún hlý og fyndin.
Gamla settið stakk af til Berlínar í gær og ég notaði tækifærið og dobblaði litla bróður til að flytja heim í nokkra daga að passa stóru systur. Það er hins vegar svo mikið að gera í skólanum að ég sé varla framan í hann, en vonandi getum við átt smá quality time um helgina.
Ég var að koma úr salsaleikfimi hjá henni Unni og er gjörsamlega uppgefin. Var fyrir að drepast úr harðsperrum eftir að hafa att kappi við karl föður minn í ræktinni á sunnudag og ég hlakka til að sjá hvort ég kemst fram úr á morgun.
Þá er afmæli og ég verð 23 ára enn eina ferðina. Góður aldur maður!