Jæjajá.

Posted in Blog on mars 29th, 2007 by Elsa

Nú skal þetta blogg rifið upp úr aumingjaskapnum!

Þá er lífið á Fróni að færast í fastar skorður. Byrjaði í verknámi á lyfjadeildinni á Barnaspítalanum í gær og líst vel á að vera þar í 4 vikur samhliða vinnunni á bráðamóttökunni – 2 ólíkar hliðar á sama teningi. Ég hef alltaf stefnt á að sérmennta mig í barnahjúkrun og þá krabbameinshjúkrun svo það verður gaman að sjá hvort þetta verður ennþá jafnspennandi eftir mánuð!

Ég er nú búin að gera ýmislegt annað en vinna og læra undanfarnar vikur. Ég átti afmæli og fékk skvísurnar mínar í afmælispizzu og spjall – virkilega notalegt og ég vildi að ég ætti afmæli einu sinni í mánuði. Þá væri ég orðin 324 mánaða og bara hálfur mánuður í næsta afmæli!

Ég lofaði sjálfri mér að vera dugleg að sinna menningartengdum áhugamálum og þetta byrjar ágætlega. Fór að sjá litla bróður leika í einni senu í skólanum á afmælisdaginn. Auðvitað var hann langbestur og flottastur (kalt mat). Hann fékk stóru systur svo til að skæla smá með því að fá bekkjarfélagana til að syngja afmælissönginn. Langflottasti afmælissöngur sem ég hef heyrt. Reyniði að toppa þetta á næsta ári!

Síðastliðið sunnudagskvöld fór ég svo að sjá sýningu Óperustúdíósins á Systur Angelicu og Gianni Schicchi eftir Puccini. Skemmti mér mjög vel og finnst þetta frábær sýning. Gaman að sjá nemendur setja upp svona vandað og vel gert sjóv og ég hlakka til að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Í gærkvöldi eignaðist ég svo formlega nýtt áhugamál.
Eins og allir sem þekkja mig eitthvað ættu að vita finnst mér afskaplega gaman að dansa við góða tónlist. Ég hef saknað þess mikið undanfarin ár að dansa almennilega en í gær opnaðist nýr heimur.
Ég er orðin official salsaaðdáandi. Jói dans dró mig (þurfti svo sem ekki að draga fast) á fund og svo í opinn tíma hjá Salsa Iceland. Ég kunni varla stakt spor en var furðufljót að ná þessu og fann bara efedrínið sprautast í kroppinn og gleðina taka völdin! Þar sem það er oft svolítið erfitt á þessu litla skeri að halda úti svona starfsemi eins og Salsa Iceland er að gera ætla ég hér með að auglýsa SALSAKVÖLD á Glaumbar mánudagskvöldið 2. apríl. Það þarf ekkert að kunna því boðið er upp á ókeypis byrjendanámskeið klukkan átta og svo er bara suðræn sveifla fram eftir kvöldi. Hljómar þetta ekki svakalega vel? Hélt það, og hlakka til að sjá ykkur öll á mánudaginn ;) Svo má kíkja á heimasíðuna www.salsaiceland.com og skoða myndir og fleira. Arriba!!

Stiklað á stóru

Posted in Blog on mars 14th, 2007 by Elsa

Þórey kom og sótti mig til Sverige. Við skiptum tímanum niður á Skövde og Stokkhólm og nutum þess að vera til. Anna og Jóhann buðu okkur í Melodifestivalgláp og spjall og áttum við notalegt kvöld. Stokkhólmur tók á móti okkur með kulda og slabbi, en það kom ekki að sök, þar sem borgin er alltaf jafnyndisleg. Í Stokkhólmi knúsuðum við villidýrin, fórum á Moderna Museet, Nationalmuseet, urðum bílveikar í þrívíddarbíó og kíktum aðeins í búðirnar. Hápunkturinn var svo La Traviata í Konunglegu sænsku óperunni – ótrúlega skemmtileg upplifun og gaman að lyfta sér aðeins upp!

Svo komum við heim og síðan þá hefur bara verið meira en nóg að gera og gerast. Við byrjuðum á að halda upp á 10 ára vinkonuafmæli Clueless með konuboði á Babalu og ég held að allir hafi skemmt sér þrusuvel – allavegana ég og hinar klessurnar ;) Árshátíð Barnaspítalans var svo kvöldið eftir og þar borðaði ég ótrúlega góðan mat (mæli með Silfrinu á Borginni), tjúttaði og spjallaði við samstarfsfólkið. Frábært kvöld. Eftir þetta húllumhæ tók við spítalavinna og lokaverkefnisvinna og svolítil líkamsrækt með því.

Ég fór að sjá söngleikinn Ást í Borgarleikhúsinu síðastliðið sunnudagskvöld og mæli með því stykki líka. Snertir strengi í hjartanu manns og þótt það séu nokkrir hnökrar á sýningunni er hún hlý og fyndin.

Gamla settið stakk af til Berlínar í gær og ég notaði tækifærið og dobblaði litla bróður til að flytja heim í nokkra daga að passa stóru systur. Það er hins vegar svo mikið að gera í skólanum að ég sé varla framan í hann, en vonandi getum við átt smá quality time um helgina.

Ég var að koma úr salsaleikfimi hjá henni Unni og er gjörsamlega uppgefin. Var fyrir að drepast úr harðsperrum eftir að hafa att kappi við karl föður minn í ræktinni á sunnudag og ég hlakka til að sjá hvort ég kemst fram úr á morgun.
Þá er afmæli og ég verð 23 ára enn eina ferðina. Góður aldur maður!

Soðin ýsa og kartöflur. Preferably stappað.

Posted in Blog on febrúar 12th, 2007 by Elsa

Það helltist allt í einu yfir mig löngun í soðna ýsu, kartöflur, smjör og salt. Því miður er ýsan hérna ógeð, svo ég held ég bíði róleg í þessa 17 daga fram að heimför!
Já, það er einungis 17 dagar í 1. mars. Og einungis 11 dagar í komu Þóreyjar Sifjar til Svíaveldis.
Við erum búnar að kaupa okkur miða á La Traviata í Konunglegu sænsku óperunni og svo eru planaðir safnadagar í Stokkhólmi í bland við ómenningarlegri tímaeyðslu.

Ég er búin að horfa á flestar myndanna, sem ég ætlaði mér að vera búin með fyrir Óskarinn, enda býst ég fastlega við að fröken Þórey vilji halda náttfatapartý fyrir framan sjónavarpið þá nótt. Sjónvarpið í íbúðinni er reyndar bilað. Nýju sambýlingarnir fiktuðu í því í gær og í dag fer það ekki í gang. Þessar tvær nýjustu eru annars frekar furðulegar og ég er fegin að ég er að flytja héðan. Önnur þeirra fer með 750 ml af matarolíu á viku, steikir allt upp úr a.m.k. desilítra af olíu og stækjan liggur um alla íbúð marga tíma á eftir.
Hið þægilega samát, sem var orðið þægilegt og peningasparandi,
er því á undanhaldi því ég kem matnum hennar bara ekki niður. Hin virðist vera mállaus, segir aldrei nokkurn skapaðan hlut og stundum er heimilishaldið frekar þrúgað af þeim sökum.

Mig langar að mæla með Babel, The Queen, Little Miss Sunshine og líka Pursuit of Happyness.
Little Miss Sunshine er með betri myndum, sem ég hef séð langalengi.
Sem og The Queen. Babel er ótrúlega sterk og vel leikin.
Pursuit of Happyness er góð Feel-Good mynd með góðan boðskap.
Svo sá ég magnaða heimildarmynd um heilaþvott á börnum í USA.  Sú nefnist Jesus Camp og það er hægt að horfa á hana á Google Videos. Hún skelfdi mig.

Þessa dagana gengur lífið út á lærdóm og meiri lærdóm. Mér finnst ég vera að verða hálfkúkú á þessu, enda of margt í gangi í einu. Þetta tekur þó allt enda næstkomandi föstudag og næstu helgi get ég byrjað að pakka og þrífa þetta skítapleis í síðasta skipti ;)  Þórey er búin að bjóðast til að skúra, svo ég held ég geymi það handa henni.

Ég er búin að vera í hálfgerðu nostalgíukasti undanfarna daga. Ég rakst fyrir tilviljun á 2 stk Aerobic Sport-skottur á netinu og fór allt í einu að söngla tónlist frá þeim frábæra tíma, gróf upp Blackstreet og Another Level og m.a.s. vinsælasta lagið í tímunum mínum árið 1997 – Who do you think you are, með hinum ódauðlegu Spice Girls. Stundum væri ég alveg til í að hverfa aftur til 1998 og upplifa þann fíling aftur. Þá var gaman!

Merkisdagur.

Posted in Blog on febrúar 1st, 2007 by Elsa

Spilakvöldið í gærkvöldi heppnaðist með ágætum.
Ákveðið var að spila Trivial Pursuit og kynjaskipta í lið - stelpur á móti strákum.
Auðvitað rústuðum við þessum gæjum, sem vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið.

Í dag á frábærasti vinkonuhópur í heimi 10 ára afmæli.
Ég held að ég hljóti að vera með ríkari Íslendingum að eiga þessar að.
Til hamingju með daginn elskurnar mínar.

Læt fylgja með eina sæta frá jóladinner Klessanna í desember.
Kristínu, Herdísi, Erlu og mig vantar nú reyndar á myndina, en hún er sæt engu að síður ;)

Mynd

Í blíðu og stríðu

Posted in Blog on janúar 31st, 2007 by Elsa

Merkilegt hvað íþróttaleikur getur haft mikil áhrif á mann.
Ég fór til Axels og Ingibjargar í gær að horfa á leikinn með nokkrum SkövdeÍslendingum. Þrátt fyrir sár vonbrigði verð ég bara að þakka liðinu fyrir frábæra skemmtun
og ótrúlegan baráttuanda.
Þetta var hrein óheppni, bæði liðin gátu unnið þennan leik og því miður spilaðist hann eins og hann gerði.
Ég er stolt af þessum strákum og þjóðremban situr ennþá í mér, daginn eftir leik.
ÁFRAM ÍSLAND.

Í kvöld fær keppnisskapið enn meiri útrás því blásið hefur verið til spilakvölds á Sturegatan.
Allt of langt síðan spilað var í Skövde og hér verður eflaust stuð.
ÁFRAM ÍSLAND.

Útivist.

Posted in Blog on janúar 28th, 2007 by Elsa

mynd

Ég bauð mér í sunnudagsheimsókn til Önnu, Jóhanns og gríslinganna.
Við skelltum okkur í gönguferð, renndum okkur á sleða og kaffærðum okkur í snjó.
Í þessum skrifuðu orðum sitjum við öll þrjú við eldhúsborðið, með kaffi (!) í bolla og sitt hvora tölvuna.
Talandi um nútímavæðingu.

Myndasíðan er up and running að nýju, bendi á hana og nokkrar nýjar myndir hér til hægri.

Stressandi umræðutími.

Posted in Blog on janúar 25th, 2007 by Elsa

Kúrsinn, sem ég er í þessa dagana, gengur að miklu leyti út á umræðutíma.
Verkefnin eru misjöfn en þó oftast í erfiðari kantinum.
Verkefni dagsins er fáránlega erfitt, ég skil ekki neitt og er þar af leiðandi með magaverk og hausverk.
Þegar verkefni snúast um að “velta fyrir sér” hinum ýmsu heimspekilegu hliðum á rannsóknarvinnu er ég out.  Ég er miklu betri í að læra eitthvað konkret, anatómían og sjúkdómafræðin eru fín fög – fullt af vísindalegum staðreyndum en ekkert svona kjaftæði.
Mikið hlakka ég til þegar klukkan slær þrjú.

Pirringur.

Posted in Blog on janúar 22nd, 2007 by Elsa

Af hverju þarf útsendingakerfi rásar tvö á netinu að klikka á svona tímapunkti?
Ísland – Frakkland á fullu og ég get ekki fylgst með.  Það er fúlt fyrir mig, en kannski ágætt fyrir landsliðið þar sem allir leikir, sem ég hlusta á, tapast.
Bömmer.

Takk fyrir kommentin við síðustu færslu, það er gott að sjá að ég er ekki ein með þennan sjúkdóm.
Ég held þó að mitt tilfelli sé að lagast og þakka það bætiefnaáti, ávöxtum, grænmeti og göngutúrum með hljóðbók í ipodinum.  Bendi ykkur, sem ekki hafið séð ljósið, á snilldina við hljóðbækur.  Að láta lesa fyrir sig spennandi sögu á meðan maður vaskar upp, labbar út í búð, fer í þvottahúsið eða bara slappar af er alveg brilljant!  Núna er ég að hlusta á Mannen som dog som en lax eða Maðurinn sem dó sem lax eftir Mikael Niemi.  Ég kolféll fyrir fyrstu bókinni sem ég las eftir hann: Populärmusik från Vittula eða Rokkað í Vittula og mæli með að allir bókaunnendur nái sér í eintak af henni.

Tónlistin sem bjargar geðheilsunni þennan mánuðinn er Nordisk Vinternatt með Sissel Kyrkjebo.  Ótrúlega fallegur og harmonískur diskur.  Mæli með honum…

Uppfært:
Ég vil þakka Sylvíu Björk sætu frænku minni fyrir að lýsa leiknum í beinni á msn og bjarga mér!   Af hverju þurfti ég að missa af þessum leik?! Af hverju var þetta ekki bilað í gær?!
Jæja, sigur.  Ole Ole Ole Ole.

Janúarveikin.

Posted in Blog on janúar 20th, 2007 by Elsa

Ég þjáist af janúarveikinni á háu stigi.
Einkenni:  ólýsanleg þreyta.
Ég er alltaf þreytt.  Vakna þreytt eftir 8 tíma svefn, legg mig yfir daginn og sofna svo dauðþreytt klukkan 22:00.  Mikið hlakka ég til þegar fer að birta almennilega.

Það gæti líka haft eitthvað með þessa þreytu að gera að ég er í leiðinlegasta kúrsi sem til er.  Ég er alveg viss um það!  Hann heitir Omvårdnadsforskningens teori och metod II og er undirbúningur fyrir lokaritgerð.
Bækurnar eru svo erfiðar að ég les setningu á ensku, þýði yfir á sænsku,
skil ekki sænsku þýðinguna, þýði yfir í íslensku en er engu nær.
Hvað gera bændur þá??!

Í gær gerði ég tilraun til að létta lundina og vakna almennilega.
Byrjaði á að hitta Lindu samstúdent í bænum í hádeginu og rölti um í góða veðrinu,
borðaði súpu og hafði það gott.
Við ákváðum svo að hún og Linda nr 2, sem er með okkur í skólanum líka,
myndu kíkja til mín um kvöldið í sjónvarpsgláp og almenna vitleysu.
Ég ákvað að leggja mig þegar ég kom heim svo ég hefði orku fyrir kvöldið.
Ég skellti í kjúklingapottrétt og meððí og við áttum fína kvöldstund.
Þar til klukkan ellefu þegar mér var orðið illt í líkamanum sökum þreytu!
Ótrúlegt alveg.

Matseðill vikunnar hefur verið endurskoðaður og aukaskömmtum af grænmeti og ávöxtum bætt inn til að reyna að bæta úr þessu ástandi.
Ég fjárfesti líka í vítamínbombu.  Það hlýtur að hjálpa!

Jahérnahér.

Posted in Blog on janúar 17th, 2007 by Elsa

Þegar ég vaknaði í morgun var ég svolitla stund að átta mig á því hvar ég var.
Ég var komin úr náttfötunum og í lopapeysu og joggingbuxur, búin að sækja ipodinn minn fram í stofu og koma mér makindalega fyrir með sængina mína í hægindastólnum.
Ég hélt ég væri alveg hætt að gera undarlega hluti í svefni, en ég hef greinilega verið busy í nótt…
Fegin bara að ég lét svona æfingar vera um helgina, þegar það gisti veðurteppt fólk í herberginu mínu!