Halló fallega fólkið mitt.

Posted in Blog on janúar 16th, 2007 by Elsa

Pabbi skammaði mig í dag fyrir að vera ekki nógu dugleg að blogga.
Ætli ég reyni ekki að bæta úr því og henda fram eins og einni færslu, enda kannski kominn tími til!!

Ég er komin aftur til Skövde eftir skrautlegt og skemmtilegt jólafrí á Fróni.
Ég var í verknámi í heimahjúkrun, fannst það fínt framan af en var komin með nóg undir lokinn.  Ætli þetta eigi ekki betur við kellur, sem hafa verið lengi í starfi og er farið að langa í meiri rólegheit.
Ég vann líka nokkrar vaktir á bráðamóttökunni á Barnaspítalanum og þar var gaman eins og venjulega.
Ég er alltaf meira og meira viss um að ég er búin að finna minn stað á hillunni minni og ég get ekki beðið eftir að komast heim og fá að byrja að vinna.

Annars fór jólafríið í að hitta vini og vandamenn.  Kvenfélagið Clueless fór út að borða og í sumarbústað á milli spilakvölda og kaffihúsaferða.  Þær eru alltaf jafnótrúlega sætar og yndislegar þessar elskur og þegar myndasíðan mín kemst í gagnið aftur ættuð þið endilega að kíkja við og líta dýrðina augum!
Jólunum eyddi ég með gamla settinu og litla bróður.  Rjúpurnar hafa aldrei verið betri, sósan hans Mimma var stórfengleg og ég er ekki frá því að Waldorfsallatið og brúnuðu kartöflurnar hafi bara heppnast ansi vel hjá mér í ár!

Áramótin voru jafnljúf og amma gamla var hjá okkur fram yfir miðnættið.
Ég grenjaði aðeins á miðnætti líkt og undanfarin ár,
en eftir að ég jafnaði mig kíktum við til vinafólks okkar og áttum með þeim notalega stund fram undir morgun.

Nú er svo að skella á síðasta hrinan í Sverige í bili og um að gera að taka hana með trompi.
Ég eignaðist á dögunum enn einn nýja sambýlinginn.
Þessi skvísa er 22 ára, fædd og uppalin í Rúanda, en hraktist þaðan
í þjóðarmorðunum 1994.
Hún talar frábæra sænsku eftir að hafa aðeins verið hérna í 3 ár og var að byrja að læra hjúkrun í háskólanum.  Það verður fróðlegt að heyra söguna hennar og kynnast henni betur.

Jólablús

Posted in Blog on desember 22nd, 2006 by Elsa

Ég er búin að vera eitthvað illa stemmd undanfarna viku og hef ekki nennt að blogga.
Það hefur svo sem ýmislegt skemmtilegt gerst.
Ég fór t.d.á  Jólasöngva í Langholtskirkju – að hlusta á hana Þóreyju þenja raddböndin með kórnum og flotta einsöngvara syngja jólin inn.

Sama laugardagskvöld var matarklúbburinn endurvakinn hjá Erlu Perlu og bauð hún upp á fáránlega góða salsasúpu.  Ef þið eruð góð skal ég fá uppskriftina og bjóða ykkur í mat ;)  Erla og Jónas nærðu okkur Þóreyju svo aftur í fyrradag og við tróðum í okkur hangiketi og meððí og hlustuðum á Katrínu Önnu fara á kostum!

Við Hilmir fórum í jólatrjáaleiðangur í dag.  Við fórum í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar eins og venjulega og féllum alveg fyrir aumingjalegu jólatré með mikinn karakter.  Tréð heitir Snærfríður og hún er núna í sparifötunum inni í stofu.

mynd

mynd

Njótiði nú síðustu daganna fyrir þessi jól og ekki ofkeyra ykkur í þrifum, bakstri og jólagjafakaupum!

Gott och blandat.

Posted in Blog on desember 13th, 2006 by Elsa

Mér liggur ýmislegt á hjarta í dag.

Í fyrsta lagi er ég orðlaus.
Hvað er að koma fyrir þjóðina? Hvernig dettur nokkrum manni í hug að bölsótast út í lokanir á vegi í kjölfar umferðarslyss?  Ég á bágt með að trúa því að fólk geri svona lagað og ég vona að hlutaðeigandi skammist sín.  Ofan í tær.

Í öðru lagi er ég glöð.
Ég er glöð að sjá hvað Latabæ gengur vel og hvað litla barnið hans Magga (sem var á fóstur- og nýburaskeiðinu þegar ég var að vinna hjá honum) vex og dafnar vel.  Latibær er að verða vinsæll í Svíþjóð og ég verð alltaf jafnglöð í hjartanu þegar ég sé diskana í búðinni :D

Í þriðja lagi er ég tónlistarfíkill.
Ég mæli með nýútkomnum diski, sem heitir Stories og er fyrsti diskurinn hans Sigga Pálma.
Ótrúlega falleg, melódísk plata, sem ég veit að margir af lesendum
síðunnar myndu fíla í botn.
Kíkiði endilega á síðuna hans, hlustiði á lögin þar og skellið ykkur svo út í búð og kaupið eintak!

Í fjórða lagi er ég sorgmædd.
Ég er eins og áður hefur komið fram í verknámi í heimahjúkrun.  Þetta er andlega erfiðasta verkefnið hingað til í náminu og ég er að reyna að melta allt sem ég sé.  Mér finnst ömurlegt að sjá við hversu bágbornar aðstæður margir aldraðir og sjúklingar búa og mér verður illt í sálinni að vita til þess hversu erfitt lífið er á sumum heimilum í desember.
Vissulega er margt af fólkinu búið að mála sig út í horn og skapa sér þessar aðstæður sjálft, en það á enginn skilið að vera aleinn í heiminum, vina- og vandamannalaus og svangur og kaldur í þokkabót.

Í fimmta lagi er ég hress.
Hvað segið þið í jólastressinu??

Hjúkkublogg!

Posted in Blog on desember 10th, 2006 by Elsa

Er ekki við hæfi að skrifa eins og eina færslu á vaktinni og standa undir nafni á þessu bloggi??!

Ég er á fyrstu kvöldvaktinni á Barnaspítalanum síðan í september.  Það er bara slatti að gera og ég er aaaalveg að komast inn í þetta allt saman aftur ;)   Ég er búin að hlakka til að mæta hingað aftur síðan ég fór út í haust, enda frábært starfsfólk og góður andi.  Eins gaman og þetta er hlakka ég lítið til að vakna í fyrramálið, enda rosalega erfitt að ná sér niður og sofna einn, tveir og sautján eftir svona húllumhæ.

Helgin er annars búin að vera alveg ágæt.  Skellti mér í geðveikina í Kringlunni og seldi fólki búsáhöld og gjafavöru í gærdag og slappaði svo af í góðum félagsskap í gærkvöldi. 

Á morgun tekur við vika númer 2 í heimahjúkruninni, þar sem ég fæ að sjá alla flóruna á hverjum degi og vel það.  Merkilegt hvernig sama starfið getur haft svona gjörólíkar hliðar og áherslur.  Frábært framtíðarstarf, fjölbreytt og skemmtilegt og býður upp á eitthvað nýtt á hverjum degi.  Annars yrði ég fljótt geðveik, enda ekki þekkt fyrir að hanga lengi í sama farinu ;)

Straumhvörf.

Posted in Blog on desember 6th, 2006 by Elsa

Í dag makaði ég framan í mig Collagenist frá Helena Rubinstein í fyrsta skipti.
Með það fyrir augum að drepa í fæðingu fyrstu hrukkuna.
Ég er að verða gömul.

Kominn tími á eins og eina færslu??!

Posted in Blog on desember 6th, 2006 by Elsa

Afsakið bloggletina undanfarið.  Er komin heim á klakann í kuldann og er alsæl með það ;)

Átti yndislegan tíma í Gautaborg og Stokkhólmi með mömmu og pabba, verslaði eins og ég fengi borgað fyrir það og kláraði megnið af jólagjöfunum.  Húrra fyrir því.  Nú ætla ég bara að njóta aðventunnar, borða piparkökur, drekka glögg og knúsa fólkið mitt.

Og reyndar læra heilan helling og vinna svolítið, en það er bara gaman.  Sit í þessum skrifuðu orðum í Miðstöð heimahjúkrunar uppi í Mjódd.  Líst vel á þetta allt saman og ætla að skella mér í vitjanir eftir eins og nokkrar mínútur.  Alltaf gaman að sjá nýjar hliðar á framtíðarstarfinu og ég held að þessi sé fjölbreytt og skemmtileg. 

Ég er sem sagt alive and kicking og að komast í rútínuna hérna heima.  Fór m.a.s. í ræktina í gær og tók á því!  Er með gamla símann minn eins og venjulega ef þið viljið ná í mig.

Ætla að þjóta út og lækna fólkið! 

Tilbúin!

Posted in Blog on nóvember 26th, 2006 by Elsa

Loksins er þetta allt að bresta á!
Ég er búin að standa á haus í dag að klára að pakka, þrífa og læra og nú er ég loksins búin að loka ferðatöskunni og skúra síðasta hornið :D
Ég er stolt af því að hafa pakkað svo vel að ég gat lokað ferðatöskunni án þess að hoppa á henni og ég er ekkert hrædd um að rennilásinn gefi sig. Var að spá í að troða meiru en ég ákvað að njóta þess einu sinni að ferðast með passlegan farangur eins og venjulegt fólk!
Svo gæti nú verið að maður bætti aðeins við í Gautaborg, það væri afspyrnuþægilegt að klára jólagjafakaupin bara á einu bretti!

Ég er sem sagt stungin af til Göreborg á morgun að knúsa mömmu og pabba.
Og versla jólagjafirnar.  Og fara á jólamarkaðinn í Liseberg.  Og drekka heitt kakó á kaffihúsi.  Og svo er pabbi búinn að lofa mér góðri steik.

Eftir viku er það svo bara Reykjavík City – hlakka heilan helling til að sjá ykkur öll!

Letiblogg.

Posted in Óflokkað on nóvember 24th, 2006 by Elsa

Ja hérna hér.
Enn einn föstudagurinn mættur á svæðið og bara mánuður til jóla.
3 dagar í settið og 9 í heimkomu!
Ótrúlegt hvað þessi blessaði tími líður hratt.

Ég var bænheyrð.
Kennararnir mínir ákváðu að breyta prófinu í þessum kúrsi í heimapróf, sem þýðir að ég skunda til Gautaborgar á mánudag. Fyrir utan stutta heimsókn hingað á miðvikudag er ég þá bara farin frá Skövde í bili og þarf ekki að mæta aftur fyrr en um miðjan janúar.
Þessu hefur verið ákaft fagnað undanfarna daga með tilheyrandi húrrahrópum.

Skólabækurnar hafa verið lagðar til hliðar
(þótt ég ætti auðvitað að vera að lesa um þvagfærasýkingar og lungnabólgu svo ég kunni kannski eitthvað örlítið í vinnunni í jólafríinu :/)
og ég er að þvo, þrífa og pakka í rólegheitunum.
Jólatónlistin hljómar hátt í herberginu mínu og ég syng hástöfum með og borða mandarínur.

Ég var einmitt að ræða jólatónlist við fallega skvísu um daginn og fór að hugsa um það hvaða jólalög fá pláss á topp 10 listanum mínum.
Og af því að jólin eru eftir mánuð og sumir kannski að fara að kaupa nýja jólatónlist hvað úr hverju ætla ég að skella listanum á bloggið!

Jólalagatoppurinn minn:

1. Gleði- og friðarjól – Pálmi Gunnars.
Þetta lag er búið að vera uppáhaldsjólalagið heima hjá mér frá því ég man eftir mér.
Ég á minningar um mömmu skælandi yfir því á Þorláksmessu og eftir því sem ég eldist þykir mér bara vænna og vænna um þetta lag.

2. Yfir fannhvíta jörð - Pálmi Gunnars.
(og svo var það að koma út í rosalega flottri útgáfu með honum Sigga Pálma á ”Jól með Mannakornum” – mæli með þeim báðum!)
Líka lag sem ég hef hlustað á í fleiri fleiri ár.  Jólalegra gerist það ekki og ég fæ fílinginn beint í æð!

3. Grown-up Christmas List - Michael Bublé.
Þar sem ég er óheyrilega væmin og fer alltaf að skæla yfir textum þar sem maður er minntur á hvað maður á að vera þakklátur fyrir sitt fær þetta lag sæti í topp 3.
Svo syngur Michael vinur minn eins og engill og bætir aukastjörnu við lagið.
Mæli með að fólk skoði jóladiskinn hans - Let it snow.

4. Sagan af Jesúsi - Baggalútur.
Til að vega aðeins upp á móti alvörunni og koma með létta jólaandann er tilvalið að hlusta á þetta snilldarlag.
Ég grenjaði úr hlátri þegar ég heyrði textann fyrst og geri það svo sem enn, enda algjör snilld.

5. Driving home for Christmas - Chris Rea.
Þetta lag greip mig í fyrsta skipti sem ég heyrði það og hefur ekki sleppt mér síðan.
Ég skal alveg keyra heim með honum Chris ef hann syngur fyrir mig.

6. Ave Maria - Sigvaldi Kaldalóns.
Þetta lag vekur ótrúlega sterkar minningar.
Það var sungið í jarðarförinni hennar ömmu Elsu rétt fyrir jólin og ég átti erfitt með að hlusta á það í mörg ár á eftir.  Núna koma bara gleðitár þegar ég hugsa um ömmu gömlu og nýt þess að hlusta á Fílharmoníuna og Diddú syngja.

7. Baby, it´s cold outside
- Dean Martin/Louis Armstrong & Ellu Fitzgerald.

Ég elska stemminguna í þessu lagi!  Kemur mér alltaf í gott skap í jólastressinu!

8. Silent night - Sinead O´Connor.

Gæsahúð.  Eiginlega ekkert meira um það að segja – geðveik útgáfa.

9. Ó helga nótt - Egill Ólafs og Fóstbræður.
Klikkar aldrei.  Falleg rödd og hátíðlegt lag.

10. Brandenburgarkonsertarnir - J.S. Bach.
Tæknilega ekki jólatónlist – en þessi flýtur alltaf undir borðhaldinu hjá okkur á aðfangadag og er orðinn órjúfanlegur hluti af jólahaldinu.

Takk fyrir allar kveðjurnar við síðustu færslu – þið eruð öll yndisleg.

Afmælisdagur.

Posted in Blog on nóvember 18th, 2006 by Elsa

Eftir því sem ég eldist geri ég mér betur og betur grein fyrir því hvað ég hef verið heppin í lífinu.
Ég hef stundum sagt það í hálfgerðu gríni að ég skammist mín fyrir það hvað ég hef haft það gott.
Af hverju er mikið á suma lagt þegar aðrir fá að fljóta í gegnum lífið á janfauðveldan hátt og ég hef gert hingað til?

Ég á ótrúlega gott bakland.
Það er það mikilvægasta af öllu.  Þegar eitthvað bjátar á er svo miklu auðveldara að takast á við það með fólkið sitt sér við hlið.

Pabbi minn á afmæli í dag.
Hann er ótrúlega gott eintak af foreldri.
Alltaf til staðar og kletturinn minn.
Takk elsku pabbi og elsku mútta fyrir að vera til.
Ég hefði ekki getað valið betra sett.
Litli bróðir er ekki sem verstur heldur – ég er fegin að hann valdi sér sama par og ég ;)
Til hamingju með daginn gamli minn.

Of mikið hrós?

Posted in Blog on nóvember 17th, 2006 by Elsa

Úff.
Ég var að horfa á sænska ædolið.
Ég hef oftast gaman að raunveruleikasjónvarpsefni, sérstaklega Idol og So you think you can dance.
Ég held hins vegar að það sé kominn tími á að gefa þessu nokkurra ára pásu, a.m.k. hérna í Svíþjóð.
Í þættinum í kvöld voru fjórir keppendur eftir og sungu allir tvö lög.
“Ástin” var þema og allir væmnir og krúttlegir.

Tveir keppendanna hafa verið rammfalskir í gegnum alla keppnina.
Agalega sæt stelpa annars vegar, sem heitir Felicia.  Hún er ekta sænsk skvísa, ljóshærð og með colgatebros, alltaf góð og glöð.  Hún græðir örugglega fullt af atkvæðum með því að vera svona sæt.  Og sænsk.
Hinn falski söngfuglinn er unglingsstrákur, sem heitir Johan.  Hann er ekkert sérstaklega mikið fyrir augað en ofsalega … sænskur að innan, góður strákur.  Ég veit ekki alveg hvaðan atkvæðin hans koma, en hann fær þau mörg, því hann tollir inni viku eftir viku, þrátt fyrir að 70% af öllum tónum séu pínlega ljótir.

Þá komum við að efni þessa bloggs.
Hver er eiginlega ástæðan fyrir öllu þessu fólki, í öllum þessum hæfileikakeppnum, sem hefur tröllatrú á eigin (misskilda) ágæti, hvort sem um ræðir dans eða söng eða eitthvað allt annað?
Er þetta uppeldið?
Er alið á því alla daga heima fyrir að viðkomandi sé langbestur og
langflottastur í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur?
Jafnvel þótt hann sé falskur og taktlaus?
Ég held að það vanti oft á tíðum raunsæi í foreldra.  Hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það.
Gerir það nokkrum gott að vera hampað á fölskum forsendum?

Væri ekki betra að ala á heilbrigðri skynsemi og beina börnunum á aðrar brautir?  Allir hafa einhverja hæfileika og það hlýtur að vera betri leið að rækta þá en reyna að halda fast í drauminn um aðra, án þess að hafa nokkurn tíma árangur sem erfiði.
Kannski er ég bara að bulla.
Ég held þó að rétt blanda af uppbyggjandi gagnrýni og réttmætu hrósi hljóti að vera besta veganestið út í lífið.

Annað er varla fréttnæmt héðan út Skövdebæ.
Búin að vera ferlega lasin og slöpp svo til alla vikuna, fyrir utan þær stundir sem herra Ibufen og fröken Panodil hafa gert mér lífið bærilegra.
Er þó að skríða saman og bara sæmilega hress í dag.
Líkamlega hress en andlega svolítið úldin.
Fjárfesti þess vegna í bók í dag og ætla að sökkva mér í sjóðheitar
ástarsenur og happy endings.